Kavos - Korfú 2002
Söfnun upplýsinga fyrir skipulagningu Kavosferðar sumarið 2002.
Nefndin hefur valið 3 mögulega valkosti sem nú þarf að kjósa á milli.
Valkostur A: Istanbúl
lýsing: Flogið frá Keflavík á miðnætti fimmtudags með LTU til Frankfurt og lent að morgni föstudags. Seinna þennan sama dag er flogið þaðan til Istanbúl, lent um kvöldið eða nóttina. Gist á ódýru hóteli í hjarta bæjarins. Á heimleiðinni er flogið frá Istanbúl klukkan sex um morgun og síðan til Íslands klukkan tíu að kvöldi fimmtudags.
kostir: Skútusigling um Svartahaf, framandi slóðir, margt að skoða, magadans.
gallar: Hitinn (35-40°C), tíminn sem fer í ferðalög, verðið. Flugið mun ekki kosta minna en 60 þúsund krónur og þá á eftir að kaupa hótelið. Ódýrast, skv. bæklingum, eru 29 evrur á mann í tveggja manna herbergi. Annar ókostur við þessa ferð er tímaramminn. Annaðhvort verðum við eina viku eða tvær vegna þess að aðeins er flogið á fimmtudögum til Íslands.
verð: ca. 80 þúsund
Valkostur B: Amsterdam, flug og bíll
lýsing: Flugleiðir fljúga til Amsterdam alla daga nema föstudaga. Öll flugin eru morgunflug, nema á mánudögum þá er síðdegisflug. Þegar við komum bíður okkar bíll og við getum keyrt hvert sem er og gert hvað sem er: Verið í Amsterdam í einhvern tíma og farið síðan til Belgíu og Lúxemborgar. Málið er að taka með sér svefnpoka og tjald en gista kannski einhvern tímann á hóteli eða í bændagistingu.
kostir: Börkur verður vonandi í Amsterdam. Þarna verður ekki óbærilega heitt um hásumarið. Amsterdam er heimaborg bjórsins góða. Hægt er að fara í "skútusiglingu" um síkin. Við getum ráðið tíma okkar sjálf og erum ekki bundin af þröngum tímaramma.
gallar: Mörg okkar hafa komið þangað áður.
verð: 35 þús fyrir flug og bíl í viku, 1500 kall fyrir aukadag. Aukagjöld 5000 í skatta og 1000 í bókunargjöld.
Valkostur C: París, flug og bíll
lýsing: Flogið er til Parísar alla daga í morgunflugi, nema á þriðjudögum og fimmtudögum í síðdegisflugi. Við getum verið eitthvað í París, farið í siglingu á Signu og setið á kaffihúsum og síðan má keyra eitthvað útá land. Til dæmis má fara í vínsmökkun til Alsace.
kostir: Bella verður í París. Ekki mörg okkar hafa komið þangað áður, margt að skoða og prufa, Versalir, Parc Astérix, Latínuhverfið...
gallar: Við mundum líklega vera í Frakklandi allan tímann.
verð: Flug og bíll í viku 35 þús, aukadagur 1500 kr. Föst aukagjöld 5000 í skatta og 1000 í bókunargjald.
Niðurstöður
Hér má sjá þau gögn sem eru komin: skoda.cgi
Ævinlega,
Kristján Rúnar Kristjánsson
22. apríl 2002