Lissabon - Portó
Frá Lissabon lá leiðin til Sintra sem er frægur fyrir að hafa verið sumardvalastaður konunganna. Götur bæjarins reyndust afar þröngar, eiginlega einum of fyrir bimmann og lá við að við eyðilegðum bílinn í tilraunum okkar til að leggja í stæði. Megna lykt lagði frá bílnum og yfir allan bæinn. Við þurftum sko ekki að hafa áhyggjur af því að týna bimmanum í þessum bæ. Þarna var bannað að flauta fyrir horn þótt full þörf hefði verið á að gera það stundum.
|
|
Við ákváðum eins og svo oft áður í ferðinni að keyra grænu leiðina, einnig nefnd kálgarðaleiðin, á áfangastað en hefðum betur sleppt því í þessu tilfelli. Ekkert reyndist að marka kortið sem lá ekki um fallegt skóglendi heldur óþolandi bílasölur. Aðeins ein akrein var í hvora átt og silaðist umferðin áfram, enda voru allir hinir bílarnir að skoða úrvalið á bílasölunum. Auk þess var hellirigning. Við vorum rúma fimm tíma að keyra tvöhundruð kílómetra og vorum því fegnust að finna blessaða hraðbrautina aftur. Eftir það var leiðin greið til Porto.
|
|
Þegar við komum til Portó var skýjað en engin þoka samt. Við sáum brýrnar sem Porto er fræg fyrir vel vegna þess að við misstum af exitinu og þurftum að keyra hringveginn, en hann lá einmitt yfir tvær af þessum brúm. Jafnframt því að keyra yfir brýr keyrðum við framhjá risastórum fótboltaleikvangi sem verið var að taka í gegn fyrir sumarið. Það var reyndar ekki það eina sem verið var að gera fínt fyrir sumarið, borgin var öll sundurgrafin á köflum því verið var að byggja neðanjarðarlestakerfi.
|
|
|
Við skoðuðum borgina, fórum á mörg kaffihús og þræddum skóbúðir fram á kvöld. Þá áttum við pantaða skoðunarferð í Sandeman, þar sem þeir búa til púrtvínið. Leiðsögumaðurinn tók á móti okkur íklæddur sandemanfötunum og leiddi okkur um dýrðina. Undir lok skoðunarferðarinnar fengum við að smakka nokkrar tegundir púrtvíns, og að sjálfsögðu keyptum við okkur eina flösku til minja.
|
|
|
|
Á gamlárskvöld fara íbúar Portó út að borða og síðan upp á torg að skála í kampavíni. Við vildum ekki vera neinir eftirbátar þeirra og pöntuðum borð á fínum indverskum veitingastað, enda komin með nóg af íslenska saltfiskinum í bili. Höfðum reyndar fyrr þennan sama dag skoðað heilu stæðurnar af saltfiski í stórmarkaðnum og séð að sá íslenski er mun dýrari en sá norski.
|
|
|
Klukkan tólf á miðnætti var lítið um að skotið væri upp flugeldum en þeim mun meira af kampavínstöppum. Þúsundir manna opnuðu flöskurnar sínar á sama tíma og tapparnir fengu að fljúga. Við vorum með Mumma með okkur og tókum þátt í kampavínstappasprengingunni.
|
|
|
|
Vegna þess hve við ætluðum að leggja snemma af stað daginn eftir ætluðum við að fara snemma í háttinn. Það átti hins vegar ekki fyrir okkur að liggja því við villtumst af leið og eyddum dágóðum tíma á nýársnótt í að keyra yfir brýrnar í Portó í leit að hótelinu, en að fara yfir brýr er víst afskaplega viðeigandi á nýársnótt. Við fundum hótelið þó að lokum, þökk sé ungum piltum sem töluðu allir bæði ensku og þýsku.
og heim aftur
Nýársdagsmorgunn og við brunum út á þjóðveginn. Keyrðum fallega fjallabaksleið til Spánar via Villa Real og svo eftir hraðbrautum, m.a. autovía 66, alla leið til Litlaklausturs með litlum sem engum hléum. Í stoppunum keyptum við kaffi og franskar, og bílstjórinn og eiginkona hans dönsuðu bretónska þjóðdansa í svefngalsanum.
|
|
|
|
Þegar heim kom var annar janúar og klukkan var fimm að morgni. Nítján klukkutíma keyrsla er kölluð strikklota í okkar fjölskyldu.
Viðauki A: Tölfræði
Helstu hagstærðir á Íslandi, í Frakklandi, í Portúgal og á Spáni
| Ísland | Frakkland | Spánn | Portúgal | |
|---|---|---|---|---|
| Flatarmál í þús. km | 103 | 544 | 505 | 89 |
| Höfuðborg | Reykjavík | París | Madríd | Lissabon |
| Gjaldmiðill | Krónur | Evra | Evra | Evra |
| Mannfjöldi | 290 þús | 59,2 m | 39,9 m | 10,0 m |
| Vþl. á mann í $ | 30.340 | 21.980 | 14.150 | 10.500 |
| Atvinnuhættir, % af vinnuafli: | ||||
| Landbúnaður | 8,3 | 1,0 | 7,0 | 13,0 |
| Iðnaður | 23,0 | 25,0 | 31,0 | 35,0 |
| Þjónusta | 68,7 | 74,0 | 62,0 | 52,0 |
| Verðbólga,% | 3,6 | 1,6 | 3,6 | 4,3 |
| Atvinnuleysi 2000,% | 1,3 | 10,0 | 14,1 | 3,8 |
| Heilsugæsla, útgjöld af Vþl. % | 8,7 | 9,3 | 7,0 | 7,7 |
| Menntun, útgjöld af Vþl.% | 5,8 | 5,9 | 4,5 | 5,7 |
| Farsímar á hverja 100 íbúa | 82,0 | 60,5 | 65,5 | 77,4 |
| Tölvur á hverja 100 íbúa | 41,8 | 33,7 | 16,8 | 11,7 |
| Nettenging á 1000 íbúa | 205,6 | 28,2 | 37,5 | 26,4 |
Vþl. = Verg þjóðarframleiðsla