Föstudaginn 3. ágúst, 2001 - Daglegt líf
[ Smelltu til að sjá stærri mynd ] ![]()
![]()
Til að halda sambandi
HA, nei ... við erum ekki að flytja til Rómar," segir Stella svolítið vandræðaleg. Svo líta þau hvort framan í annað og Kristján útskýrir: "Við erum að fara í brúðkaupsferð." Hann tekur upp blað og réttir blaðamanni.
HA, nei ... við erum ekki að flytja til Rómar," segir Stella svolítið vandræðaleg. Svo líta þau hvort framan í annað og Kristján útskýrir: "Við erum að fara í brúðkaupsferð." Hann tekur upp blað og réttir blaðamanni. Það er ekki um að villast - hann er með hjónavígsluvottorð í höndunum ... gefið út 25. júlí. "- Hvaða dagur er í dag?"Halda sambandi milli landa
Kristján Rúnar Kristjánsson og Stella Soffía Jóhannesdóttir búa saman stúdentagörðum. Kristján lauk í vor BS prófi í eðlisfræði og stærðfræði en Stella er nýstúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík. Þau blogga."Jaa, ég veit ekki alveg hvort þetta er blogg," þau ljúka hvort við annars setningar og örðugt að segja hvort þeirra hefur orðið. "Bloggarar eru yfirleitt að segja skoðanir sínar á pólitík, rífast og skammast. Við höldum frekar persónulega dagbók á Netinu. Segjum bara frá atburðum í daglega lífinu."
Þau hafa haldið dagbókina á slóðinni froskur.net í tæpt ár. "Hann gaf mér tölvuna í jólagjöf," segir Stella. "Já, og svo hófum við að skrifa dagbókina í ágúst," bætir hann við. "Mamma hans bjó í Noregi og foreldrar mínir í Frakklandi, síðan fóru margir vinir okkar til náms í útlöndum eftir stúdentspróf. Okkur þótti þetta skemmtileg leið til að halda sambandi."
Myndavélaúr
Daglega færa Kristján og Stella nokkurn texta og tugi ljósmynda á dagbókina sína. Hvað tekur þetta mikinn tíma?"Ekkert mikinn. Kannski kortér á dag. Ég er alltaf með myndavélina á mér ..." Kristján brettir upp ermina og sýnir myndavélaúrið sitt. Úrið hefur hann átt í rúmlega hálft ár, tekur með því svart/hvítar myndir hvert sem hann fer og hleður myndunum í tölvuna sína " ... þannig að myndatökurnar taka engan tíma." Kristján viðurkennir að hann hafi smíðað lítið forrit, sem setur upp myndasíðurnar fyrir hann.
"Já, þetta er ekkert tímafrekt, ekki tímafrekara en hver önnur dagbók," bætir Stella við. "En okkur finnst gaman að svona tæknidóti og við erum svolítið mikið á Netinu, skoðum annarra dagbækur og svoleiðis."
Stella og Kristján nota sér þjónustu fyrirtækisins Blogger.com, sem geymir síðurnar þeirra og gerir dagbókarfærslur auðveldar og þægilegar. "Þeir senda okkur afrit af hverri færslu og svo lofa þeir að passa upp á síðurnar okkar."
Misskemmtilegt efni
Kristjáni þykir trúlegt að íslenskir bloggarar séu um 70 talsins. "Það eru alltaf einhverjir að bætast við," segir Stella "en fáir sem halda út svona lengi.""Efnið á dagbókunum er auðvitað misskemmtilegt," samþykkir Kristján. "Mér finnst svona dagbækur eins og okkar skemmtilegri en pólitískt blaður. Það er eins og margir vilji bara segja álit sitt á öllu, kannski án þess að hafa neitt merkilegt fram að færa. Innihaldið er náttúrulega aðalatriði."
"Farin til Rómar"
Það er 25. júlí í dag, Kristján og Stella voru að gifta sig fyrir tveimur tímum og fljúga á morgun til Rómar í brúðkaupsferð. "Pabbar okkar voru svaramenn. Annars vita vinir og ættingjar þetta ekkert ennþá, við ákváðum eiginlega bara að gifta okkur í fyrradag. Við ætlum að láta alla vita á Netinu, skrifum í dagbókina: "Við erum farin til Rómar, í brúðkaupsferð."
Úr dagbókinni:
19. júní 2001
Fiseindin virðist hafa massa!Samkvæt þessari frétt í NYtimes benda nýjustu mælingar til þess að fiseindir hafi massa. Þær eru samt fisléttar því massinn er í allra mesta lagi einn sextíuþúsundasti af massa rafeindar.
Þetta er stórfrétt fyrir öreindafræðinema eins og mig. Nú skora ég á einhvern að spyrja Vísindavefinn nánar um fiseindir og massa þeirra.
Annað sem mér finnst skemmtilegt við þessa grein sem ég vísaði í: Það er talað við tvo virta eðlisfræðinga, annan frá Princeton og hinn frá Santa Barbara. Eftir að ég ákvað að fara til Santa Barbara fæ ég engan frið fyrir þessum stað. Ég er alltaf að heyra um einhverja fræga karla frá Santa Barbara eða einhver fræg rauðvín frá Santa Barbara-sýslu.
Kristján.
Ég er með stíbblað neb
Í dag var stuttur vinnudagur hjá mér. Ég mætti klukkan níu og var til tvö en var samt dauðþreytt. Ég er nefnilega búin að vera með rosalegt kvef og hálsbólgu síðan á Rammstein. Mér hefur orðið kalt án þess að taka eftir því þegar við komum út úr hitanum.
Annars hef ég nóg að gera í dag við að þvo þvott og vaska upp. Það er heldur ekkert til að borða svo ég verð víst að fara í Bónus. Mér finnst ekkert leiðinlegra en að fara út að versla.
Stella.
© Morgunblaðið, 2001