Dagbók Kristjáns og Stellu

Frásögn af lífi í ellefu víddum

 

Föstudagur 30. janúar 2009

Dagarnir

Þrátt fyrir yfirlýsingar um að hún sé hætt að borða ýmislegt tókst mér að fá Áslaugu Eddu til að borða brokkolí um daginn. Man ekki í svipinn hvaða trix ég notaði en hún fékkst sumsé til að smakka það. Silungurinn sem var í matinn í gærkvöldi var borðaður upp til agna þannig að ég hef engar sérstakar áhyggjur af tiktúrunum í henni dóttur minni.

Þórdís Ólöf er farin að geta borðað með skeið án þess að allt fari út um allt. Reyndar fer ýmislegt á gólfið og veggina en meirihluti matarins fer upp í munn og ofan í maga. Þá hefur hún einnig látið af þeim leiða ósið að hvolfa matardisknum yfir hausinn á sér og við þurfum ekki lengur að binda hana ofan í matarstólinn.

Orðaforðinn hjá þeirri litlu er sífellt að aukast. Hún kann að segja húfa og barbapabbi en skilur auk þess helstu orð og fyrirmæli. Við vorum til dæmis að lesa saman bók um daginn og hún þekkti nánast öll dýrin sem komu fyrir á myndunum.

Áslaug er náttúrlega algjör sérfræðingur í að tala en það er hennar uppáhaldsiðja. Hún tileinkar sér ný hugtök eftir að hafa heyrt þau einu sinni eða tvisvar og framburðurinn er yfirleitt alltaf réttur. Það er helst að hún víxli samhljóðum í orðum eins og galdra. Hún er með eitt fyndið stafavíxl en það er alveg stolið úr mér hvað það er. Skrifa það hér þegar ég man eftir því.

Fyrir utan það að tala og borða eru stelpurnar býsna duglegar að leika sér. Bóbi afi gaf þeim forláta svissneskan trésleða sem þær hafa notað mikið í snjónum undanfarna daga. Þeim þykir gaman að láta draga sig í leikskólann og renna í brekkunni á Klambratúni. Skemmtilegast finnst þeim ef Norðurmýrarsysturnar eru með í för á sínum berlínska trésleða.

Stella | 10:12 | ummæli 1


Föstudagur 23. janúar 2009

Hoppað á einari

Þórdís Ólöf blómstrar í leikskólanum. Hún er alltaf til í að fara í leikskólann og kveður sátt í lok dags. Hún er góð, leikur sér við hina krakkana og er býsna örugg með sig. Síðan Þórdís byrjaði á leikskólanum hefur hún mannast mikið, hún er orðin svo mikill krakki í sér að nú er varla séns að fá hana til að sitja í barnastól við matborðið. Hún vill bara fá að sitja eins og hinir!

Áslaug greindist með eyrnabólgu í báðum eyrum í gær og er nú komin á sýklalyf. Hún kvartaði lítið undan verkjum en var ósköp pirruð. Í gær vorum við saman heima, ég og Áslaug, og það var mjög notalegt að eyða heilum degi alein með stóru stelpunni minni. Við púsluðum, perluðum og horfðum að sjálfsögðu á múmínálfana saman.

Annars er Áslaug með stórar yfirlýsingar þessa dagana. Til dæmis segist hún hætt að borða mysing ofan á brauð og bráðum ætli hún líka að hætta að borða kavíar og smjör. Brauðið ætlar hún að borða þurrt. Svo sagðist hún líka ætla að hætta að hoppa á einari en notaði tækifærði og sýndi okkur hvernig maður gerir það svo um munaði. Hér hefur verið hoppað á einari í allt kvöld.

Stella | 21:29 | ummæli 4


Miðvikudagur 14. janúar 2009

Kvef og skóli

Stelpurnar hafa verið lasnar þessa vikuna. Þórdís byrjaði á að fá hita og kvef og Áslaug fylgdi í kjölfarið. Við Kristján erum mjög kvefuð líka en höfum sloppið við hita.

Ég var sumsé kvefuð í skólanum í allan dag, en miðvikudagar verða löngu dagarnir mínir. Í morgun fór ég í námskeið í verkefnastjórnun sem var mjög skemmtilegt. Eftir hádegið voru það smásögur og málstofa sem heitir Dýra-líf.

Það er dálítið skrítið að fara í skólann. Sérstaklega þótti mér það erfitt í morgun en þá átti ég að vera mætt klukkan 8:20. Ég sem hef varla vaknað fyrir klukkan átta síðastliðin þrjú ár! Ég ætlaði aldrei að sofna í gærkvöldi út af kvíða yfir að ég mundi sofa yfir mig, en svo gekk þetta allt saman vel.

Fyrstu frímínútur voru klukkan níu og þá hafði ég lært ýmislegt. Ótrúlegt hverju má áorka svona snemma á morgnana.

Stella | 22:07 | ummæli 2


Mánudagur 12. janúar 2009

Eitt ár á Íslandi

Það er liðið ár síðan við fluttum frá Stokkhólmi til Íslands. Fyrstu vikurnar heima voru býsna erfiðar man ég, það snjóaði mikið, við vorum bíllaus í nokkra daga og komumst varla út úr húsi vegna ófærðar. Íbúðin var galtóm og það bergmálaði í öllu. Áslaug Edda varð pirruð á rútínuleysinu og breytingin var erfið fyrir hana.

Nú, ári síðar, líður öllum vel. Systurnar una sér vel á leikskólanum og eru sáttar þar. Pabbinn er ánægður í vinnunni og mamman er á leið í háskólann.

Já, í dag byrja ég í meistaranámi í hagnýtri ritstjórn og útgáfu og er ýkt spennt. Ég held að tólfti janúar sé góður dagur til að byrja á einhverju nýju, en þetta er afmælisdagur Stellu ömmu minnar heitinnar. Fyrsti tíminn er eftir tvo klukkutíma...

Stella | 11:29 | ummæli 6


Þriðjudagur 6. janúar 2009

Eftir jólin

Nú er leikskólinn hafinn að nýju eftir gott jólafrí. Áslaug var ekkert spennt fyrir að byrja aftur eftir hátíðarnar en var svo ósköp ánægð með að vera mætt aftur á Grænu deildina. Henni finnst gott að komast í rútínu aftur.

Þórdís Ólöf fór aftur í aðlögun í gær. Hún var í einn og hálfan tíma og það gekk bara ágætlega. Í dag var hún í heila þrjá klukkutíma, fór út að leika og borðaði hádegismat. Sökum þreytu borðaði hún reyndar lítið en að öðru leyti gekk vel. Nú er hún steinsofandi, hún var sko alveg búin á því. Áslaugu finnst gaman að vita af litlu systur sinni á sama leikskóla og í gær heyrði ég hana spyrja var ekki gaman á leikskólanum í dag Þórdís mín?

Stella | 13:01 | ummæli 2


janúar 2009

innihald

nýjustu ummæli

nýjasta myndin

skjalasafn

dagbækur


RANDOM


eXTReMe Tracker