Dagbók Kristjáns og Stellu

Frásögn af lífi í ellefu víddum

 

Sunnudagur 30. nóvember 2008

Blue in the Face

Þórdís lætur mann ekki komast upp með neitt múður, hún reynir að fá sínu fram með öllum tiltækum ráðum.

Í kvöld stóð hún á öndinni og varð blá í framan vegna þess að við leyfðum henni ekki að borða súpuna sína með puttunum. Þórdís snarþagnaði þegar hún fékk súpudiskinn aftur fyrir framan sig en reyndi samstundis að nota hendurnar, jafnvel þótt henni væri rétt skeið og líka þótt við reyndum að mata hana.

Yfirleitt má segja að þriðjungur matarins fari ofan í maga. Einn þriðji fer á gólfið og síðasti þriðjungurinn endar í hárinu eða í fötunum, yfirleitt vegna þess að Þórdís hvolfir yfir sig diskinum. Við erum að reyna að venja hana af þessum ósiðum, en það er hægara sagt en gert þegar hún verður alltaf blá í framan af reiði.

Þrátt fyrir þetta er litla stelpan okkar ljúf eins og lamb. Henni þykir voðalega gaman að knúsa mann og kyssa og þykir fátt skemmtilegra en að lesa bækur. Þórdís er dugleg að dunda sér ein og getur setið lengi og kubbað eða blaðað í bókum.

Þórdísi finnst gaman að leika með Áslaugu og reynir iðulega að vera með í leiknum án þess að skilja út á hvað hann gengur. Áslaug reynir þá að ýta henni frá sér og þá kemur Þórdís hlaupandi fram til mömmu og pabba og "klagar" stóru systur með bendingum. Það þykir okkur ósköp sætt en sem betur fer fellur allt fljótt í ljúfa löð á milli þeirra systra.

Stella | 21:30 | ummæli 3


Föstudagur 28. nóvember 2008

Sætar systur

Þær Áslaug og Þórdís verða sætari með hverjum deginum. Nú eru þær báðar nýklipptar og því enn sætari en venjulega. Þetta var fyrsta klipping Þórdísar en Áslaug hafði ekki farið í alvöru klippingu síðan hún fór á Froskastofuna á Värtavägen í Stokkhólmi sumarið 2007. Ég hafði þó fengið að klippa toppinn á henni reglulega.

Eftir klippinguna er Áslaug harðákveðin í að starfa sem hárgreiðslustofa þegar hún verður stór. En það er samt enn inni í myndinni að vinna í bleikum banka þar sem súkkulaðikex er í boði alla daga.

Þórdís er ekki búin að ákveða hvað hún ætlar að verða en stríðnispúki kemur sterklega til greina held ég. Hún er nefnilega svo mikill prakkari að það hálfa væri nóg. Skemmtilegast þykir henni að stríða stóru systur. Henni þykir líka gaman að tæma úr öllum skúffum heimilisins og skríða inn í þær, pottaskúffan er vinsælust því það fylgir svo mikill hávaði þegar hún er tæmd.

Ég held ég hafi heyrt nýtt orð hjá Þórdísi í morgun. Hún sagði dudi og starði svo lengi á rúsínuna á disknum sínum áður en hún tók hana upp og stakk henni upp í sig. Ég ætla að hlusta eftir hvað hún segir næst þegar það eru rúsínur á boðstólum.

Stella | 14:07 | ummæli 2


Sunnudagur 9. nóvember 2008

Áslaug Edda þriggja ára!

Loksins er þriðji afmælisdagur Áslaugar Eddu runninn upp. Hans hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu undanfarnar vikur enda var Áslaug eiginlega ekki sátt við að vera bara tveggja og hálfs lengur. En nú er hún sumsé orðin þriggja eins og allir hinir krakkarnir á Grænu deildinni á Sólhlíð.

Við fengum marga góða gesti í afmælisveisluna í dag og var afmælisbarnið sérlega ánægt með pakkauppskeruna og alla skemmtilegu krakkana sem heimsóttu hana. Afmæliskakan vakti líka lukku, við útbjuggum alvöru prinsessukastalaköku með gluggum, hurðum og turnum sem Áslaug Edda hafði valið úr sérstakri afmæliskökubók fyrir löngu síðan.

Áslaug Edda er svo heppin að Sigrún amma kom í heimsókn frá Noregi akkúrat rétt fyrir afmælið og það er sko ekki amaleg afmælisgjöf að fá ömmu sína í heimsókn.

Stella | 22:23 | ummæli 0


nóvember 2008

innihald

nýjustu ummæli

nýjasta myndin

skjalasafn

dagbækur


RANDOM


eXTReMe Tracker