Frásögn af lífi í ellefu víddum
Síðan Þórdís átti afmæli hafa mikil veikindi lagt undir sig heimilið. Stelpurnar skiptust á að vera lasnar, fengu báðar háan hita í fjóra daga. Þórdís tók tennur og Áslaug skipti um deild á leikskólanum og þessu fylgdi mikill pirringur hjá þeim báðum. Þegar þær voru búnar að vera veikar veiktist ég heiftarlega og var lengi að jafna mig. Áslaug var lasin í dag og Þórdís mjög kvefuð en ég vona að þetta tímabil sé að verða búið núna.
Það gerðist líka ýmislegt skemmtilegt í október. Við fórum í sumarbústað á Laugarvatni með Norðurmýrargenginu og skemmtum okkur mjög vel. Stelpurnar léku sér við Ísoldu og Karólínu, við fórum í heita pottinn, spiluðum og borðuðum góðan mat. Síðast en ekki síst hlustuðum við á hundrað bestu lög íslenska lýðveldisins.
Áslaug er með stafina á heilanum þessa dagana. Hún les utan á allar umbúðir, dagblöð og hvað sem hún kemst í og er ægilega ánægð þegar hún sér stafina sína. Hún þekkir auk þess alla stafina í stafrófinu nema þessa öftustu (x,y,z, æ, ö) og veit hver á hvaða staf. Skemmtilegast þykir henni að Ásdís og Áslaug eigi sömu stafi.
Annað vinsælt umræðuefni á heimilinu er væntanlegt afmæli Áslaugar. Hún er búin að ákveða hvernig kaka á að vera í afmælinu og hverjum á að bjóða, hvernig kertin eiga að vera á litinn og hvernig blöðrur á að kaupa. Hún er sko komin með nóg af því að vera tveggja og hálfs og er alveg tilbúin að verða þriggja!
Þórdís er farin að tala og tjá sig meira en áður. Hún kann að suða eins og fluga og notar eitt ákveðið orð yfir ketti (sem ég man reyndar ekki hvað er núna). Þórdís segir dada, takk, datt og kalt. Og svo segir hún auðvitað mamma. Þórdís skilur mikinn fjölda orða og fyrirmæla, til dæmis fer hún með bleiuna í ruslið ef maður biður hana um það.
Það gerir hún reyndar ekki ef hún er í prakkarastuði. Þá tekur hún á rás með bleiuna og felur sig inni í herbergi með mikinn stríðnissvip. Hún á það til að vera voðalega stríðin.
Stella | klukkan 22:06
Guð minn góður hvað ég hugsaði til þín í ælupestinni minni. Það hefur ekki verið gaman að vera ein med to lille piger og allar með þessa ógeðispest! En mikið var gaman að hitta þig á laugardagskveldið! Bestu kveðjur og gangi ykkur vel að skipuleggja þriggjaáraafmælið... Rósa.
Úff púff, vonandi gekk ælupestin hratt yfir hjá þér! Og mikið var gaman að hitta ykkur píurnar í boðinu. Gerum endilega alvöru úr aðventuhittingi!
Úff, þessi veikindi eru ekki skemmtileg. Vonandi er heilsan bara á uppleið. Allt svo miklu skemmtilegra með heilsuna í lagi :)