Frásögn af lífi í ellefu víddum
Síðan Þórdís átti afmæli hafa mikil veikindi lagt undir sig heimilið. Stelpurnar skiptust á að vera lasnar, fengu báðar háan hita í fjóra daga. Þórdís tók tennur og Áslaug skipti um deild á leikskólanum og þessu fylgdi mikill pirringur hjá þeim báðum. Þegar þær voru búnar að vera veikar veiktist ég heiftarlega og var lengi að jafna mig. Áslaug var lasin í dag og Þórdís mjög kvefuð en ég vona að þetta tímabil sé að verða búið núna.
Það gerðist líka ýmislegt skemmtilegt í október. Við fórum í sumarbústað á Laugarvatni með Norðurmýrargenginu og skemmtum okkur mjög vel. Stelpurnar léku sér við Ísoldu og Karólínu, við fórum í heita pottinn, spiluðum og borðuðum góðan mat. Síðast en ekki síst hlustuðum við á hundrað bestu lög íslenska lýðveldisins.
Áslaug er með stafina á heilanum þessa dagana. Hún les utan á allar umbúðir, dagblöð og hvað sem hún kemst í og er ægilega ánægð þegar hún sér stafina sína. Hún þekkir auk þess alla stafina í stafrófinu nema þessa öftustu (x,y,z, æ, ö) og veit hver á hvaða staf. Skemmtilegast þykir henni að Ásdís og Áslaug eigi sömu stafi.
Annað vinsælt umræðuefni á heimilinu er væntanlegt afmæli Áslaugar. Hún er búin að ákveða hvernig kaka á að vera í afmælinu og hverjum á að bjóða, hvernig kertin eiga að vera á litinn og hvernig blöðrur á að kaupa. Hún er sko komin með nóg af því að vera tveggja og hálfs og er alveg tilbúin að verða þriggja!
Þórdís er farin að tala og tjá sig meira en áður. Hún kann að suða eins og fluga og notar eitt ákveðið orð yfir ketti (sem ég man reyndar ekki hvað er núna). Þórdís segir dada, takk, datt og kalt. Og svo segir hún auðvitað mamma. Þórdís skilur mikinn fjölda orða og fyrirmæla, til dæmis fer hún með bleiuna í ruslið ef maður biður hana um það.
Það gerir hún reyndar ekki ef hún er í prakkarastuði. Þá tekur hún á rás með bleiuna og felur sig inni í herbergi með mikinn stríðnissvip. Hún á það til að vera voðalega stríðin.
Síðastliðið ár hefur flogið framhjá okkur og allt í einu er Þórdís Ólöf orðin eins árs. Í gær finnst mér hún hafa verið nýfætt lítið kríli sem varla gat opnað augun og í dag er hún skyndilega orðin dugleg og kraftmikil stelpurófa sem getur ótrúlega mikið alveg sjálf.
Í tilefni dagsins fékk Þórdís afmælissöng og pakka. Frá stóru systur fékk hún mynd af köngulóarbangsa, ánamaðki og sniglum sem var teiknuð í gærkvöldi.
Afmælisbarnið fór út að leika á Freyjugöturóló í morgun þar sem hún hitti önnur börn og aðrar mömmur. Svo bökuðum við berjaköku í hádeginu og buðum Baldri frænda í kaffi. Áslaug og pabbi voru líka heima í dag þar sem veikindi eru að hrjá heimilisfólk.