Dagbók Kristjáns og Stellu

Frásögn af lífi í ellefu víddum

 

Mánudagur 22. september 2008

Ein tönn til og veikindi

Tönn númer fimm kom fyrir helgi. Þessi tönn var nokkuð óvænt því ekkert hafði borið á pirringi hjá Þórdís. Nú er sú litla með lítið frekjuskarð, sem kemur kannski ekki á óvart miðað við karakterinn, en það er spurning hvort skarðið minnki ekki með tilkomu fleiri tanna.

Þórdís fékk gubbupest í nótt en er að mestu búin að jafna sig núna. Áslaug fékk einmitt álíka gubbupest þegar hún var ellefu mánaða, og þá líkt og nú veiktist ég líka. Í veikindum næturinnar uppgötvaði Þórdís hvernig maður kemur óskum sínum á framfæri með bendingum. Þegar hún var þyrst labbaði hún einfaldlega inn í eldhús og benti á bolla sem hún hafði drukkið vatn úr stuttu áður. Dugleg stelpa.

Í dag var hringt af leikskólanum því Áslaug var komin með gubbupestina líka. Baldur kom og var hjá Dísu á meðan ég hljóp til að ná í Áslaugu. Jói afi hjálpaði okkur líka heilmikið í dag, hann fór með Áslaugu á leikskólann, sem var nú heilmikið ævintýri í sjálfu sér, og var með okkur stelpunum seinni partinn.

Stella | 21:01 | ummæli 0


Þriðjudagur 9. september 2008

Framtennur og framfarir

Loksins komu framtennurnar tvær í efri góm hjá Þórdísi Ólöfu. Þær hafa verið lengi á leiðinni með tilheyrandi pirringi hjá dömunni. Það er gaman að sjá hvernig svipurinn breytist með tilkomu tannanna og nú er bara að bíða eftir að fleiri bætist í hópinn.

Stórstígar framfarir hafa orðið í göngumálum. Nú labbar Þórdís herbergja á milli eins og ekkert sé en dettur stundum ef hún er trufluð á leiðinni. Þá heldur hún áfram skríðandi. Henni finnst líka gaman að láta leiða sig um og er Áslaug Edda sérlega dugleg í því hlutverki.

Nú kann Þórdís skil á hinum ýmsu hlutum. Bolti, dúkka, dudda og bíll eru orð sem hún þekkir vel og veit hvað þýða en getur enn sem komið er ekki sagt. Hins vegar er hún með mamma, dada og datt alveg á hreinu og ég held að hún hafi kallað á stóru systur sína um daginn. Þá sagði hún hátt og snjallt Á á!

Og talandi um nöfn. Áslaug Edda átti í mestu vandræðum með að bera fram nafnið á litlu systur og sagði alltaf Sóldís. Þegar við reyndum að leiðrétta hana tók Áslaug upp á því að hætta að reyna að segja nafnið og notaði bara orðið litla systir í staðinn. Við fórum þá að nota gælunafnið Dísa sem að Áslaug gat auðveldlega borið fram.

Í gær kom svo nafnið óbrenglað úr munni stóru systur. Áslaug var að segja vinkonu sinni á leikskólanum að systir hennar héti Þórdís Ólöf og þegar hún fattaði að hún hafði sagt það alveg rétt varð hún himinlifandi: Mamma, mamma, ég sagði Þórdís Ólöf!

Stella | 10:01 | ummæli 3


Mánudagur 1. september 2008

Sjósund

Ég synti yfir Fossvog í dag. Gunni skutlaði mér og tveimur öðrum vinnufélögum út á Kársnes í vesturbæ Kópavogs og þaðan syntum við í köldum sjónum norður í Nauthólsvík. Fyrir mig var þetta eins konar symbólískur flutningur. Ég hef verið Kópavogsbúi alla ævi en er nú búinn að kaupa mér íbúð í Hlíðunum og var því í vissum skilningi að hleypa heimdraganum með því að synda þarna á milli.

Í sumar höfum við vinnufélagarnir farið vikulega í sjósund. Þá tökum við aðeins lengra hádegishlé og skjótumst út í Nauthólsvík þar sem öll aðstaða er til fyrirmyndar.

Fyrsta skiptið var hrikalega kalt. Þá rétt gátum við stungið okkur í kaf áður en við hlupum skríkjandi í heita pottinn. Í annað skiptið syntum við frá siglingaklúbbnum og inn í ylströndina. Eftir það fóru sundferðirnar að lengjast smám saman og fljótlega var ljóst að Fossvogurinn yrði engin fyrirstaða. Eins og sannaðist í dag.

Næst á dagskrá er Viðeyjarsund.

Kristján | 21:25 | ummæli 6


september 2008

innihald

nýjustu ummæli

nýjasta myndin

skjalasafn

dagbækur


RANDOM


eXTReMe Tracker