Frásögn af lífi í ellefu víddum
Úti á svölum sefur Þórdís Ólöf sinn fyrsta lúr í svalavagni. Hún sofnaði fljótt og vel þrátt fyrir nýtt umhverfi en hingað til hefur Þórdís ýmist tekið lúrinn í eigin rúmi eða í vagninum sínum þegar við erum úti að ganga. Svalirnar eru akkúrat mátulega stórar fyrir vagninn og ég get setið inni í stofu og fylgst með svefnpurrkunni út um gluggann.
Sú litla er sífellt að verða betri í að ganga. Nú getur hún tekið fimm eða sex skref í einu og er ægilega montin í hvert sinn. Stóra systir hvetur litlu systur áfram af miklum móð, styður við hana og grípur hana ef hún dettur.
Þórdís Ólöf er alltaf að læra nýja og nýja leiki. Þessa dagana er feluleikurinn vinsæll en henni finnst líka mjög gaman að setja dót ofan í fötur og kassa. Við rekumst á alls konar dóterí ofan í furðulegustu ílátum. Þá hefur Þórdís verið á ferðinni.
Stella | klukkan 14:12
Þórdís Ólöf er alveg á fullri ferð í þroskanum núna :-) Dugleg stelpa og ekki langt í að hún fari að hlaupa á eftir stóru systur.
Heyrðu, hvað er Þórdís Ólöf aftur gömul?