Dagbók Kristjáns og Stellu

Frásögn af lífi í ellefu víddum

 

Miðvikudagur 30. júlí 2008

Fréttir af Fjörðunum

Sumarfríið okkar hefur verið alveg frábært. Við höfum átt yndislega daga á sunnanverðum Vestfjörðum og útilegan leggst vel í stelpurnar.

Fyrstu tvær næturnar vorum við í Flókalundi. Þar var yndislegt veður, böns af berjum og heitur pottur í flæðamálinu. Stelpurnar fíluðu villibaðið í ræmur en Kristján var hálf svekktur að komast ekki í sjónn, fjaran var bara svo löng að það var bara ekki yfir þarann gangandi.

Í fyrradag keyrðum við á Rauðasand. Heilmikið af sandinum fór upp í munninn á Þórdísi en hún er öllu vön í þeim efnum. Við fengum okkur síðan vestfirskar hveitikökur með silungi til að skola niður sandinum. Síðar um daginn keyrðum við út á Látrabjarg, sum okkar með hjartað í buxunum en aðrir voru sofandi. Stelpurnar sváfu á meðan við Kristján skipumst á að fara út á bjargið en Kristján var öllu hugrakkari en ég sem rétt kíkti á lundana.

Í dag og í gær höfum við verið á Tálknafirði. Hér er alveg frábært tjaldsvæði með sundlaug og vatnsrennibraut í seilingarfjarlægð. Hitinn hefur nánast verið óbærilegur og í dag fórum við öll í sjóinn til að kæla okkur. Áslaug fann marglyttu og margar fallegar skeljar en Þórdís var mest í því að borða sandinn.

Við keyrðum líka á Bíldudal í dag á meðan stelpurnar sváfu í bílnum. Stella amma mín var fædd og uppalin á Bíldudal og eftir að hafa talað við æskuvinkonu hennar, Nönnu, sem býr á Tálknafirði, römbuðum við á húsið sem amma fæddist og bjó í fyrstu æviárin. Húsið heitir Vinaminni og er afskaplega fallegt bæði að innan og utan. Ég hitti nefnilega núverandi eigendur í dag og þeim fannst lítið mál að leyfa mér að líta á húsið. Mér þótti mjög vænt um það.

Ferðalagið okkar mun halda áfram næstu daga og fara dálítið eftir veðri og vindum. Við vorum að enda við að þvo fötin okkar hér á tjaldstæðinu á Tálknafirði (besta tjaldstæði á landinu!) svo við erum alveg klár í nokkra daga í viðbót.

Stella | klukkan 23:19


Talað við dagbók: Ummæli frá lesendum (2)

mor/mormor 31-07-2008 @ 6:09 #5142

En gaman að fá svona beina lýsingu.
Bestu kveðjur vestur.

Ilmur 03-08-2008 @ 19:35 #5145

þetta hljómar mjög vel og hvetur mann til að sækja firðina heim. Ég hlakka til að sjá ykkur öll þegar þið komið í bæinn.

kv. Ilmur og co.

Skrifa ný ummæli





Leyfilegt HTML: a href, b, i, br, p, strong, em, ol, ul, li

skjalasafn

nýlegar færslur

nýjustu ummæli

innihald




eXTReMe Tracker