Frásögn af lífi í ellefu víddum
Stelpurnar eru farnar ađ leika sér svolítiđ saman. Ţćr fóru til dćmis í eltingarleik í dag og fannst báđum jafnskemmtilegt. Ţćr skríktu og hlógu og enginn slasađi sig eins og stundum vill verđa ţegar leikurinn er orđinn of skemmtilegur.
Ţórdís er orđin svo dugleg ađ standa. Nú getur hún stađiđ heillengi án stuđnings, sérstaklega ef hún er ađ einbeita sér ađ einhverju. Um leiđ og Ţórdís fattar ađ hún heldur sér ekki í, missir hún jafnvćgiđ og dettur á bossann. Sú litla er líka dugleg ađ labba međfram og taka nokkur skref sé hún leidd á báđum höndum.
Áslaug er alltaf jafnsniđug og skemmtileg. Hókí-pókí er í miklu uppáhaldi og hvar sem fólk er samankomiđ í hring sér hún tćkifćri til ađ dansa hókí-pókí. Á ţađ jafnt viđ í erfidrykkjum eđa uppi í sveit međ frćndfólki sem hún hefur sjaldan hitt.
Í dag lék Áslaug sér á skólalóđinni í Hlíđaskóla. Ţar er leiktćki sem snýst í hringi og ég bjóst viđ ađ hún fćri ţar marga hringi án ţess ađ velta ţví neitt frekar fyrir sér. Áslaug kom mér á óvart međ ţví ađ spyrja Mamma, hvort á ég ađ fara í hálfhring eđa heilan hring?
Ţegar viđ borđuđum kvöldmatinn opnađi Áslaug Edda ísskápinn og tók eftir ţví ađ ţađ kom kalt loft út úr honum. Svo hugsađi hún sig ađeins um og sagđi já, ţetta er nefnilega ís-skápur! Hún er nú alveg ótrúleg.
Stella | klukkan 23:09
Mér finnst Áslaug Edda svo skemmtileg, ţađ verđur eitthvađ stórkostlegt úr ţessari stelpu