Dagbók Kristjáns og Stellu

Frásögn af lífi í ellefu víddum

 

Fimmtudagur 17. júlí 2008

Gullkorn frá Áslaugu Eddu

Viđ vorum ađ rćđa stjörnumerkin núna í morgun. Ég sagđi viđ Áslaugu Eddu ađ ég vćri vatnsberi, pabbi vćri steingeit og hún vćri sporđdreki. Ţá brást hún illa viđ og sagđi: Ég er ekki sporđdreki, ég er Ben Ten og litla er líka Ben Ten! Ben 10 er uppáhaldsteiknimyndafígúra Kristjáns Orra frćnda hennar og ţađ er greinilegt ađ hún heyrir mikiđ um Ben 10 ţegar ţau hittast.

Viđ heimsóttum Pétur afa í gćr og hittum ţar fyrir Ernu og Conchu. Áslaugu gekk ágćtlega ađ lćra nöfnin á ţeim, en á heimleiđinni höfđu ţau eitthvađ skolast til. Áslaug sagđi nefnilega ađ Erna hefđi veriđ skemmtileg, og Kolfinna líka. Ţađ passar ágćtlega, enda er Concha bćđi dökk á brún og brá.

Í sömu heimsókn stóđum viđ öll og spjölluđum viđ Elínu og Sigurgeir. Ţegar Áslaug rak augun í ađ viđ stćđum öll í hring stakk hún upp á ađ viđ dönsuđum Hókí-pókí af ţví tilefni. Í lok lagsins, ţegar mađur segir "ţetta var allt og sumt", sagđi hún kotroskin: Ég gat ekki sumt, ég sagđi dumt!

Stella | klukkan 8:14


Talađ viđ dagbók: Ummćli frá lesendum (1)

Kristján Orri 18-07-2008 @ 15:58 #5136

Veistu hvađ, Ben 10 er strákur. Stelpur eiga ađ vera Gwen.

Skrifa ný ummćli





Leyfilegt HTML: a href, b, i, br, p, strong, em, ol, ul, li

skjalasafn

nýlegar fćrslur

nýjustu ummćli

innihald




eXTReMe Tracker