Dagbók Kristjáns og Stellu

Frásögn af lífi í ellefu víddum

 

Miðvikudagur 2. júlí 2008

Engin eyrnabólga

Við fórum með Þórdísi til læknis í morgun því hitinn virtist ekkert vera að réna og hún varð bara veikari ef eitthvað var. Læknirinn, sá sami og í fyrradag, leit í eyrun og sá enga eyrnabólgu í þetta skiptið. Annað hvort var hún aldrei til staðar eða þá að hún er farin í fússi.

Hvað sem því líður erum við ánægð með eyrnabólguleysið. Þórdís virðist líka hafa orðið hressari við að hitta lækninn, að minnsta kosti hefur hún verið hitalaus síðan hún fékk hitastillandi snemma í morgun og hefur verið hin ánægðasta í dag. Nú er sú stutta sofnuð og ég mátti alveg leggja hana í rúmið.

Þórdís Ólöf er orðin níu mánaða. Hún getur rétt upp hendurnar til að sýna hvað hún er stór og hún kann að tromma. Klappið er næst á dagskrá.

Stella | klukkan 13:56


Talað við dagbók: Ummæli frá lesendum (2)

Jóhanna Jakobsdóttir 02-07-2008 @ 14:53 #5126

Frábært að eyrnabólgan virðist vera farin eða hafa aldrei komið. Vona að hitinn láti sig hverfa sem fyrst líka.

Jafnöldrurnar eru ekki samtaka í þetta skiptið. Gréta Björg er búin að læra að klappa en ekki sýna hvað hún er stór!

Stella 04-07-2008 @ 15:07 #5127

Já, það var gott að þetta voru ekki eyrun. Ég var farin að halda að Þórdís yrði eyrnabarn, en maður veit svosem aldrei.

Það er sama hvað ég klappa mikið, Þórdís vill bara tromma.

Skrifa ný ummæli





Leyfilegt HTML: a href, b, i, br, p, strong, em, ol, ul, li

skjalasafn

nýlegar færslur

nýjustu ummæli

innihald




eXTReMe Tracker