Dagbók Kristjáns og Stellu

Frásögn af lífi í ellefu víddum

 

Miðvikudagur 30. júlí 2008

Fréttir af Fjörðunum

Sumarfríið okkar hefur verið alveg frábært. Við höfum átt yndislega daga á sunnanverðum Vestfjörðum og útilegan leggst vel í stelpurnar.

Fyrstu tvær næturnar vorum við í Flókalundi. Þar var yndislegt veður, böns af berjum og heitur pottur í flæðamálinu. Stelpurnar fíluðu villibaðið í ræmur en Kristján var hálf svekktur að komast ekki í sjónn, fjaran var bara svo löng að það var bara ekki yfir þarann gangandi.

Í fyrradag keyrðum við á Rauðasand. Heilmikið af sandinum fór upp í munninn á Þórdísi en hún er öllu vön í þeim efnum. Við fengum okkur síðan vestfirskar hveitikökur með silungi til að skola niður sandinum. Síðar um daginn keyrðum við út á Látrabjarg, sum okkar með hjartað í buxunum en aðrir voru sofandi. Stelpurnar sváfu á meðan við Kristján skipumst á að fara út á bjargið en Kristján var öllu hugrakkari en ég sem rétt kíkti á lundana.

Í dag og í gær höfum við verið á Tálknafirði. Hér er alveg frábært tjaldsvæði með sundlaug og vatnsrennibraut í seilingarfjarlægð. Hitinn hefur nánast verið óbærilegur og í dag fórum við öll í sjóinn til að kæla okkur. Áslaug fann marglyttu og margar fallegar skeljar en Þórdís var mest í því að borða sandinn.

Við keyrðum líka á Bíldudal í dag á meðan stelpurnar sváfu í bílnum. Stella amma mín var fædd og uppalin á Bíldudal og eftir að hafa talað við æskuvinkonu hennar, Nönnu, sem býr á Tálknafirði, römbuðum við á húsið sem amma fæddist og bjó í fyrstu æviárin. Húsið heitir Vinaminni og er afskaplega fallegt bæði að innan og utan. Ég hitti nefnilega núverandi eigendur í dag og þeim fannst lítið mál að leyfa mér að líta á húsið. Mér þótti mjög vænt um það.

Ferðalagið okkar mun halda áfram næstu daga og fara dálítið eftir veðri og vindum. Við vorum að enda við að þvo fötin okkar hér á tjaldstæðinu á Tálknafirði (besta tjaldstæði á landinu!) svo við erum alveg klár í nokkra daga í viðbót.

Stella | 23:19 | ummæli 2


Miðvikudagur 23. júlí 2008

Frábærar systur

Stelpurnar eru farnar að leika sér svolítið saman. Þær fóru til dæmis í eltingarleik í dag og fannst báðum jafnskemmtilegt. Þær skríktu og hlógu og enginn slasaði sig eins og stundum vill verða þegar leikurinn er orðinn of skemmtilegur.

Þórdís er orðin svo dugleg að standa. Nú getur hún staðið heillengi án stuðnings, sérstaklega ef hún er að einbeita sér að einhverju. Um leið og Þórdís fattar að hún heldur sér ekki í, missir hún jafnvægið og dettur á bossann. Sú litla er líka dugleg að labba meðfram og taka nokkur skref sé hún leidd á báðum höndum.

Áslaug er alltaf jafnsniðug og skemmtileg. Hókí-pókí er í miklu uppáhaldi og hvar sem fólk er samankomið í hring sér hún tækifæri til að dansa hókí-pókí. Á það jafnt við í erfidrykkjum eða uppi í sveit með frændfólki sem hún hefur sjaldan hitt.

Í dag lék Áslaug sér á skólalóðinni í Hlíðaskóla. Þar er leiktæki sem snýst í hringi og ég bjóst við að hún færi þar marga hringi án þess að velta því neitt frekar fyrir sér. Áslaug kom mér á óvart með því að spyrja Mamma, hvort á ég að fara í hálfhring eða heilan hring?

Þegar við borðuðum kvöldmatinn opnaði Áslaug Edda ísskápinn og tók eftir því að það kom kalt loft út úr honum. Svo hugsaði hún sig aðeins um og sagði já, þetta er nefnilega ís-skápur! Hún er nú alveg ótrúleg.

Stella | 23:09 | ummæli 2


Fimmtudagur 17. júlí 2008

Gullkorn frá Áslaugu Eddu

Við vorum að ræða stjörnumerkin núna í morgun. Ég sagði við Áslaugu Eddu að ég væri vatnsberi, pabbi væri steingeit og hún væri sporðdreki. Þá brást hún illa við og sagði: Ég er ekki sporðdreki, ég er Ben Ten og litla er líka Ben Ten! Ben 10 er uppáhaldsteiknimyndafígúra Kristjáns Orra frænda hennar og það er greinilegt að hún heyrir mikið um Ben 10 þegar þau hittast.

Við heimsóttum Pétur afa í gær og hittum þar fyrir Ernu og Conchu. Áslaugu gekk ágætlega að læra nöfnin á þeim, en á heimleiðinni höfðu þau eitthvað skolast til. Áslaug sagði nefnilega að Erna hefði verið skemmtileg, og Kolfinna líka. Það passar ágætlega, enda er Concha bæði dökk á brún og brá.

Í sömu heimsókn stóðum við öll og spjölluðum við Elínu og Sigurgeir. Þegar Áslaug rak augun í að við stæðum öll í hring stakk hún upp á að við dönsuðum Hókí-pókí af því tilefni. Í lok lagsins, þegar maður segir "þetta var allt og sumt", sagði hún kotroskin: Ég gat ekki sumt, ég sagði dumt!

Stella | 8:14 | ummæli 1


Sunnudagur 13. júlí 2008

Fyrstu skórnir

Þórdís Ólöf er orðin dugleg að standa upp og labba með. Í tilefni af því keyptum við fagurrauða fyrstu skó í Steinari Waage. Áslaug Edda fékk nákvæmlega eins skó þegar hún fékk sína fyrstu, nema hennar voru tveimur númerum stærri. Hún var reyndar aðeins eldri en Þórdís er núna þegar hún eignaðist sína fyrstu skó, sem skýrir stærðarmuninn.

Þórdís Ólöf hefur verið dugleg að skríða á skónum sínum hér um allt í dag en hún hefur líka notað þá til að standa og labba. Hún er ægilega ánægð og finnst gott að naga nýju skóna sína.

Stella | 21:27 | ummæli 2


Mánudagur 7. júlí 2008

Útilega í bongóblíðu

Þokan í Reykjavík höfðaði ekki til okkar um helgina og því ákváðum við að keyra austur á Þingvelli og fara í útilegu. Við hentum dótinu í bílinn og fjörutíu mínútum síðar vorum við byrjuð að tjalda á frábærum stað niðri við Þingvallavatn.

Veðrið var alveg dásamlegt, yfir tuttugu stiga hiti og logn. Stelpunum leist vel á tjaldið og skemmtu sér við að hoppa og skoppa á vindsænginni á meðan við Kristján bjuggum til kaffi á prímusnum. Svo nutum við þess að flatmaga í hitanum, leika við stelpurnar og horfa á kríurnar steypa sér ofan í vatnið.

Síðdegis fórum við í Þjónustumiðstöðina og keyptum okkur ís og áfyllingu á prímusinn. Svo gengum við að Peningagjá, upp að Lögbergi og í Almannagjá. Áslaug Edda fékk að vaða í Öxará og vildi helst ekki koma upp úr því það var svo skemmtilegt hjá henni.

Undir kvöldið komu Móa, Arnar og stelpurnar og tjölduðu fyrir aftan okkur. Það var mikið sport fyrir Áslaugu að fá svona góða leikfélaga eins og þær systur Ísold og Karólína eru og frábært að sjá hversu vel þær frænkurnar ná saman.

Við sváfum vel í tjaldinu en heldur stutt. Klukkan sjö í gærmorgun vorum við komin á fætur en það gerði ekkert til því veðrið var svo yndislegt. Við gaufuðum niðri við vatnið fram að hádegi en fórum þá að pakka saman.

Í heildina gekk ferðin mjög vel en næst ætlum við að taka með okkur meiri mat. Það er eitthvað skrítið að fara í útilegu og klára allan matinn sem maður tekur með sér, og vilja samt meira. Einnig ætlum við að taka borð og stóla og stól fyrir Þórdísi, og svo var einhver að nefna að það væri hægt að taka með sér Sodastream í útilegu. Við sjáum til það, tökum tækið kannski með ef það er pláss í bílnum.

Stella | 14:17 | ummæli 3


Miðvikudagur 2. júlí 2008

Engin eyrnabólga

Við fórum með Þórdísi til læknis í morgun því hitinn virtist ekkert vera að réna og hún varð bara veikari ef eitthvað var. Læknirinn, sá sami og í fyrradag, leit í eyrun og sá enga eyrnabólgu í þetta skiptið. Annað hvort var hún aldrei til staðar eða þá að hún er farin í fússi.

Hvað sem því líður erum við ánægð með eyrnabólguleysið. Þórdís virðist líka hafa orðið hressari við að hitta lækninn, að minnsta kosti hefur hún verið hitalaus síðan hún fékk hitastillandi snemma í morgun og hefur verið hin ánægðasta í dag. Nú er sú stutta sofnuð og ég mátti alveg leggja hana í rúmið.

Þórdís Ólöf er orðin níu mánaða. Hún getur rétt upp hendurnar til að sýna hvað hún er stór og hún kann að tromma. Klappið er næst á dagskrá.

Stella | 13:56 | ummæli 2


Þriðjudagur 1. júlí 2008

Eyrnabólga og amma

Þórdís Ólöf fór til læknis í gær sem úrskurðaði að eyrnabólgan væri aftur komin á stjá. Ekki vildi hann ávísa sýklalyfjum strax svo við gefum bara parasetamól og það virkar mjög vel.

Þórdís var með hitavellu í gær en mun hærri hita nú í morgun. Í dag býst ég við að hún vilji bara vera í magapokanum, að minnsta kosti lætur hún í sér heyra ef ég geri tilraun til að leggja hana í rúmið, og það þótt hún sé steinsofandi.

Í öðrum fréttum er það helst að Ólöf amma er komin í heimsókn. Líkt og Sigrún amma fær hún að sofa á vindsæng inni í herbergi hjá Áslaugu og er það ósköp notalegt.

Stella | 11:34 | ummæli 2


júlí 2008

innihald

nýjustu ummæli

nýjasta myndin

skjalasafn

dagbækur


RANDOM


eXTReMe Tracker