Frásögn af lífi í ellefu víddum
Þórdís Ólöf er kvefuð. Hugsanlega hefur hún nælt sér í kvefið í útilegunni en það plagar hana dálítið núna. Horsuga var sett á innkaupalistann og hefur það apparat verið óspart notað í dag og í gær.
Ég ætlaði reyndar aldrei að kaupa horsugu framar því Áslaug Edda þoldi ekki græjuna og byrjaði að góla um leið og hún sá hana. Þórdís Ólöf er ólík systur sinni að því leyti að hún byrjar að hlæja þegar hún sér hana og því höfum við ekkert samviskubit yfir að snýta barninu svona duglega.
Í átta mánaða skoðuninni um daginn kom í ljós að Þórdís er 72 cm og vegur 8 kíló. Á sama aldri var Áslaug kílóinu þyngri, en það hefur munað þessu sama kílói á þeim systrum frá fæðingu.
Þórdís hefur nú skriðið um allt frá því hún var tæplega sjö mánaða og fer sífellt hraðar. Það eru engar hindranir á vegi hennar, hún fer yfir þröskulda og jafnvel upp tröppur ef því er að skipta.
Fyrir tveimur vikum eða svo byrjaði Þórdís að standa upp og stendur nú upp hvar sem færi gefst. Það er mjög gaman að fylgjast með því og viðbrögðum stóru systurinnar við dugnaðinum í þeirri litlu: Sjáðu mamma! Þórdís stóð upp af því ég er búin að kenna henni það!
Stella | klukkan 21:32
... svo má nú ekki gleyma að hrósa henni fyrir vasklega framgöngu í vexti og hreyfingum!! :) :)
Horsugan sem við keyptum er með oddi sem fer aðeins inn í nefið, en ég hef einmitt heyrt af þessu með ertinguna og fer því varlega í framkvæmdirnar. Ég hef ekki séð svona apparat eins og Bjarki er með á myndinni á Íslandi en rámar í að það hafi verið selt í Svíþjóð.
Við hlökkum líka til að fá ömmuna!
Horsugu-pæling: Nú veit ég ekki hvernig oddurinn er á horsugunni, en ef hann fer eitthvað upp í nefið, þá fékk ég einu sinni það komment frá einhverri hjúkkunni að það geti valdið ertingu og ennþá meira hori...!!
Bjarki var reyndar sogaður vel og rækilega á sínum tíma, en það var með oddi sem fór svo til ekkert upp í nefið. Sjá http://radio-blonde.stanford.edu/dagbok/fh2007/4f7094b80.jpg Svo er víst alveg nauðsynlegt að væta með saltvatni þegar maður sogar... :)