Dagbók Kristjáns og Stellu

Frásögn af lífi í ellefu víddum

 

Fimmtudagur 12. júní 2008

Hrærivélar

Ég er tómum vandræðum þessa dagana en sem betur fer eru vandræðin ekkert stórvægileg. Þau eru eiginlega hálfvandræðaleg ef ég á að segja eins og er. Þannig er nefnilega að mig hefur lengi langað í alvöru hrærivél og hef nú í nokkurn tíma verið að velta fyrir mér hvers konar hrærivél ég eigi að kaupa mér.

Í fyrstu komst ekkert annað að en KitchenAid og þá átti hún helst að vera í einhverjum skemmtilegum lit. Upphaflega þótti mér þessi rauða fallegust, svo sá ég eplagræna og loks fannst mér þessi appelsínugula svölust. Nú er ég hins vegar orðin afhuga litunum og mundi annað hvort fá mér hvíta eða kremaða.

En þá er það spurningin um tegund því nú fór ég að skoða Kenwood hrærivélar líka og þær eru einnig býsna töff í útliti. Kenwood eru aðeins ódýrari en KitchenAid en miklu kröftugri. Til dæmis er hægt að fá 1200 watta hrærivél frá Kenwood á sama verði og 300 watta KitchenAid. Hvað þýða þessar tölur og skipta þær einhverju máli fyrir venjulegt fólk?

Úrval aukahluta fyrir Kenwood og KitchenAid er svipað. Ég veit ekki hvor er háværari, en það finnst mér skipta miklu máli. Maður hefur heyrt að KitchenAid endist mannsaldur, en gerir Kenwood það ekki líka?

Hvað segja lesendur dagbókarinnar um þetta mál? Hvorum hópnum tilheyrið þið, Kenwood eða KitchenAid? Hvað á ég að gera ef ég vil fá eina almennilega græju í eldhúsið mitt?

Stella | klukkan 23:09


Talað við dagbók: Ummæli frá lesendum (15)

Hildur 13-06-2008 @ 8:18 #5101

Þetta er mikilvæg spurning! Mín fjölskylda er Kitchenaid fjölskylda og hafa vélarnar ennst mjög vel. Flest eigum við notaðar vélar sem við höfum svo heppilega fengið frá rafvirkjanum í fjölskyldunni sem gerir við Kitchenaid hrærivélar. Þær eru jú pínu háværar en ég veit ekki um neina hrærivél sem er það ekki!

Hins vegar þekki ég konu sem á Kenwood hrærivél sem hefur ennst henni jafn vel og Kidchenaid vélarnar hafa ennst þeim sem svoleiðis eiga! Veit reyndar ekkert um hávaða stuðulinn í Kenwood vélum.

Ætli þetta séu ekki þegar á botnin er hvolft svipaðar vörur. Þá er það bara verð og útlit sem skiptir máli!!

Erna Magnúsdóttir 13-06-2008 @ 9:22 #5102

Ég myndi tékka á því hvort það er mikill hávaði í Kenwood vélunum. Fyrir mína parta finnst mér þær betri en Kitchen Aid, en gallinn er að þessar gömlu alla vegana eru alveg hroðalega háværar...

móa 13-06-2008 @ 10:37 #5103

Einhvern veginn finnst mér Kitchen Aid vera málið veit ekki hvort það er af hégóma-íhaldsemi eða öðru. Mér finnst þær nú ekkert svo hávaðasamar og fagrar á að líta. Um hina tegundina hef ég reyndar lítið heyrt svo ekki er að marka mig kannski. máo

Begga 13-06-2008 @ 11:14 #5104

Kitchen Aid.
Ekki spurning finnst mér.
Eins og að eiga góðan traktor sem plogast gegnum hvaða kalda smjörbita sem er... og gerir að mjúku kremi á innan við mínútu.
Er alltaf jafn hissa á því hvers megnug vélin mín er. Svo fyllir það bara húsmóðurhjartað að sjá vélina standa þarna í eldhúsinu. Mamma bauð mér að sauma cover á hana til að hylja þegar hún er ekki í notkun. "Ertu BRJÁLUÐ!" fékk hún sem svar.

Spáðu kannski líka hvernig er að þrífa þær þegar búið er að slettast með einhvað í skálinni sem þeytist inn og undir allt... er hægt að skrúfa botninn fyrir hrærivélaskália upp og niður á Kenwoodinu ? Er hægt að kaupa varahluti auðveldlega (þeytara og skálar).
/Beggan

Jóhanna Jakobsdóttir 13-06-2008 @ 12:04 #5105

Rauð Kitchen Aid hér og rauð Kitchen Aid brauðrist líka! Veit því miður ekkert um Kenwood. Ef gæðin eru svipuð er það þá ekki bara spurning um hvor þér finnst flottari? Það er kannski að hluta til vandamálið, hvor mun þér finnast flottari eftir nokkur ár ;-)

Palli sagði mér að hávaðinn í hrærivélum og ryksugum væri aðalega til sýnis í dag, það væri víst lítið mál að komast hjá honum. Framleiðendur hafi nefnilega komist að því að margar (eldri?) konur eigi bágt með að trúa því að ryksugan sé kröftug ef ekkert heyrist í henni.

mor 13-06-2008 @ 14:54 #5106

Sko hér trónir ljómandi lagleg KitchenAid uppi á ísskáp, hvít að lit. Hana er hægt að taka allrækilega í sundur og þrífa í botn annað veifið. Hávaðinn? Hann stendur stutt, hún er svo fljót að þessu...
Um hitt merkið get ég ekki með góðu móti tjáð mig, held ég.

Dísa farmorssyster 13-06-2008 @ 17:13 #5107

Ég eignaðist minni gerðina af Kitchenaid (alveg nógu stóra) 1956. Það fylgdu henni ýmsir fylgihlutir, suma notaði ég aldrei. En einn fylgihluturinn sem ég notaði óspart , t.d. til að rífa grænmeti, saxa möndlur og hnetur og núgga bilaði einn daginn. Þegar ég ætlaði að kaupa nýja kvörn var hún óheyrilega dýr svo að ég keypti mjög ódýra hrærivél sem entist nokkur ár.
En í júlí 1995 keypti ég Bosch hrærivél með hnoðara og tveim mismunandi þeyturum. Hakkavél, blandari o.fl. fylgdi. Ef ég þyrfti að kaupa hrærivél núna mundi ég kaupa ódýra og góða hrærivél í hlutlausum lit!

Anna Lilja 13-06-2008 @ 21:28 #5108

Við eigum KitchenAid, fengum okkur hana áður en Fjóla Ósk fæddist, þannig að hún er orðin ríflega 8 ára gömul. Okkar er sérstaklega lágvær, sem mér finnst skipta miklu máli í fjölbýli. Ég get hrært í smákökur eða kökur eftir miðnætti og enginn tekur eftir því.

Ég hins vegar ólst upp við Kenwood hrærivél, og hún var alveg gífurlega hávær, miðað við mína. En það gæti lika verið munurinn á árgangstýpum. En við fengum okkur KitchenAid út af minni minningu af hávaða frá Kenwood.

Við eigum hvíta, fyrst sá ég eftir því að hafa keypt hvíta og hafði hana bara inni í búri. Núna hef ég hana uppi við, nota hana miklu meira og er stolt!

Stella 13-06-2008 @ 23:32 #5109

Ég svaf á málinu í nótt og vaknaði með nýjar hugmyndir. Brunaði svo út í hrærivélabúð klukkan níu í morgun og skoðaði KitchenAid aftur.

Síðdegis fórum við svo og keyptum okkur gífurlega fallega eplagræna eldhúshjálp. Hún er æði :-) Takk fyrir ráðleggingarnar.

Dísa frænka 14-06-2008 @ 8:16 #5110

Í framtíðinni ætla ég að halda áfram heita Dísa frænka þó að Stella eigi margar undir í því nafni.
Til hamingju með eplagrænu hrærivélina.

Jóhanna Jakobsdóttir 14-06-2008 @ 13:34 #5111

Til hamingju. Hún er geggjuð!

ilmur 15-06-2008 @ 10:03 #5112

Til lukku, og liturinn er ÆÐI. Hlakka til að hitta nýju eldhúshjálpina ykkar.

Inga Magga 15-06-2008 @ 21:35 #5113

Sé að ég er aðeins of sein, við eigum fagurrauða kenwood hrærivél sem malar mjög notalega.

Inga Magga 15-06-2008 @ 21:36 #5114

Sé að ég er aðeins of sein, við eigum fagurrauða kenwood hrærivél sem malar mjög notalega, öskrar ekki eins og kitchenAid vélin hennar mömmu!

Jóhanna 18-06-2008 @ 14:16 #5116

Ég er of sein en verð samt að segja að ég á einmitt fagurrauða KitchenAid og elska hana jafnheitt og ég elsa fjölskylduna mína og sambýlismann! ;)

Skrifa ný ummæli





Leyfilegt HTML: a href, b, i, br, p, strong, em, ol, ul, li

skjalasafn

nýlegar færslur

nýjustu ummæli

innihald




eXTReMe Tracker