Frásögn af lífi í ellefu víddum
Sem betur fer varð engin eyrnabólga úr kvefinu hennar Þórdísar Ólafar. Hún er búin að vera hress og kát síðustu daga og er að mestu laus við kvefið. Við fengum tvær erfiðar veikindanætur í síðustu viku, Þórdís vakti meira og minna báðar næturnar og í minningunni finnst mér hún hafa öskrað allan tímann. Við Kristján skiptumst á að sofa en vorum frekar grá og guggin dagana á eftir. Sem betur fer hafa stelpurnar alltaf sofið vel og svefnlausar nætur heyra því til algjörra undantekninga hjá okkur.
Áslaug og Þórdís eru alltaf jafngóðar saman. Áslaug er að kenna litlu systur að tala og er sjálf í hálfgerðri talþjálfun. Hún á nefnilega í smá vandræðum með nafnið sitt, ber það alltaf fram Áglau, og nafn systur sinnar ber hún fram sem Sóldís. Þórdís kann að segja mamma en hún segir líka dada og namm. Ég er mjög spennt að heyra hvað stóra systir verður kölluð.
Í góða veðrinu í gær hjóluðum við niður í Nauthólsvík. Stelpurnar undu sér vel í hjólavagninum og voru miklu ánægðari núna en síðast. Ég held að það sé vegna þess að við þurrkuðum af rúðunum og nú sáu þær vel út. Áslaug bjó til sandkastala, skreytti hann með steinum og skeljum og sótti vatn til að búa til síki. Þórdís skreið um allt, borðaði sand og reif flatköku niður í þúsund litla mola. Frábær strandferð og við hlökkum til að fara aftur. Þá ætlum við að taka með okkur sundfötin.
Stella | klukkan 13:43
Úff, maður gerir sér ekkert smá grein fyrir hvað svefn skiptir miklu máli fyrr en við missinn sjálfan. Við erum loks að fá nætursvefn núna eftir miklar þrautir og mæðu.
Áslaug Edda á eftir að koma sjálfri sér svo á óvart, Þ er rosa erfitt hljóð, auk þess sem sum börn eiga erfitt með S. Þannig í sjálfu sér er hún afburðadugleg að geta sagt S :) Það finnst mér allavega
Já, eyrnabólga er hundleiðinlegt fyrirbæri og vonandi sleppur Gréta Björg alfarið við hana. Eyrnaolía á víst að vera fyrirbyggjandi og ég setti einmitt svoleiðis í eyrun á Þórdísi þegar hún fékk kvefið en hvort það hafi haft eitthvað að segja veit ég ekki.
Áslaug á eftir að læra öll þessi hljóð með tímanum en á meðan hún kann ekki að segja R er voðalega gaman að hlusta á hana segja lómveskur liddali...
Mamma, þú hjólar bara með okkur niður á strönd við hentugt tækifæri :-)
Duglegar systur. Frábært að ekki varð eyrnabólga úr kvefinu. Við höfum sloppið hingað til en ég er alveg logandi hrædd við eyrnabólgu, líklega vegna þess að Palli var eyrnabólgubarn og þau er þónokkur í hans fjölskyldu.
Rosalega er Þórdís Ólöf dugleg að tala. Ég hef ekki enn tekið eftir að orðin hennar Grétu Bjargar merki neitt sérstakt en það kemur.
Lítil frænka mín sem ég passaði og gat ekk sagt ´R´kallaði Þórdísi vinkonu sína einmitt Sóldísi. Ég man enn þá eftir því þegar hún loksins gat sagt ´R´þá kom hún stolt til mín og spurði: "Viltu reima fyrir mig skóna?"