Frásögn af lífi í ellefu víddum
Ţađ hefur ýmislegt drifiđ á daga okkar síđustu tvćr vikurnar. Eyrnabólgan er löngu búin og farin en nú er nýtt kvef á byrjunarstigi hjá Ţórdísi og vonum viđ bara ađ ţađ berist ekki í eyrun líka. Áslaug Edda er lasin heima međ okkur í dag, en veikindin lýsa sér í miklum hressileika á daginn en háum hita á kvöldin.
Ţórdís Ólöf er átta mánađa í dag og í tilefni af ţví stóđ hún upp áđan og hélt sér í. Fyrir tćpum mánuđi fór hún ađ skríđa og fer ansi hratt um íbúđina. Hún er mikiđ á ferđinni enda vill hún helst vera ţar sem stóra systir er, en Áslaug hleypur mikiđ um á milli herbergja eins og gefur ađ skilja.
Ţćr systur fóru á sinn fyrsta Tortudag nú um helgina. Áslaug dreifđi áburđi en Ţórdís skođađi gras og steina og reyndi ađ sjálfsögđu ađ stinga öllu upp í sig. Á Tortu hittum viđ frćndur og frćnkur og fengum okkur pikknikk saman í lautinni ađ lokinni áburđardreyfingu.
Sigrún amma er í heimsókn frá Noregi. Stelpurnar hafa brallađ ýmislegt skemmtilegt međ henni og hafa meira ađ segja fengiđ pössun hjá henni eitt kvöld á međan viđ foreldrarnir brugđum okkur af bć.
Stella | klukkan 13:11
Gaman ađ lesa um Tortuferđ.
Til hamingju međ daginn, Ţórdís Ólöf.
Góđan bata, Áslaug Edda.
Knús til Sigrúnar og ykkar allra, ađ sjálfsögđu!
Kveđjur frá regnvotum skaga.