Dagbók Kristjáns og Stellu

Frásögn af lífi í ellefu víddum

 

Þriðjudagur 20. maí 2008

Eyrnabólga

Þórdís Ólöf er komin með eyrnabólgu. Við fórum með hana til læknis í gær og hann skrifaði upp á sýklalyf og fyrirskipaði inniveru og sundfrí.

Ég vissi að eitthvað var að angra litluna mína en hélt að það væri tanntakan. Bonjela, sem er deyfigel til að bera á tannholdið, sló aðeins á pirringinn en þó bara í stutta stund. Lúrarnir voru stuttir í gær og Þórdís vaknaði stundum upp með andfælum. Síðdegis var hún komin með hita og þá var ekkert annað að gera en að láta kíkja á eyrun.

Áslaug Edda tekur eyrnabólguna mjög alvarlega og er afskaplega blíð við litlu systur, hughreystir hana (svona, svona Þórdís mín) og knúsar hana mikið.

Stella | 9:30 | ummæli 8


Mánudagur 12. maí 2008

Með Skoppu og Skrítlu

Það var stór dagur hjá Áslaugu í dag því hún fór í Þjóðleikhúsið og hitti Skoppu og Skrítlu. Þær stöllur hafa verið í miklu uppáhaldi á þessu heimili frá því við kynntumst þeim fyrst og það var því spennt lítil dama sem fór út úr húsi í morgun.

Áslaug og Ísold frænka hennar sátu á dýnum við sviðið og ég sá ekki betur en að þær hafi skemmt sér konunglega. Við Móa sátum aðeins aftar og skemmtum okkur ekki síður vel því sýningin var mjög sniðug.

Að leikritinu loknu hoppaði Áslaug á sviðinu og talaði svolítið við Skrítlu. Ég náði því miður ekki að heyra hvað þeim fór á milli en það hefur eflaust verið eitthvað forvitnilegt. Í lokin fékk Áslaug svo að sitja fyrir á mynd með bæði Skoppu og Skrítlu. Hún var mjög ánægð með það.

Stella | 20:48 | ummæli 0


Sunnudagur 11. maí 2008

Í hjólavagni

Við fórum í fjölskylduferð í Nauthólsvíkina í dag. Við Kristján vorum á hjólunum en stelpurnar í anhængernum sem okkur áskotnaðist í gærkvöldi. Mér sýndist fara ljómandi vel um þær og Þórdís Ólöf náði meira að segja að sofna á þessari stuttu leið sem við fórum.

Hjólavagninn er fínasta lausn fyrir okkur þessa stundina. Þórdís er nefnilega heldur lítil til að sitja aftan á hjóli en í vagninum er hún vel varin fyrir vindinum og auk þess með stóru systur sína hjá sér til skemmtunar. Í vagninum er síðan líka pláss fyrir allt það dót sem maður þarf að hafa með sér þegar maður fer í skreppitúra út í Nauthólsvík.

Stella | 21:20 | ummæli 3


Laugardagur 10. maí 2008

Snuddan kvödd

Nú er Áslaug Edda orðin tveggja og hálfs árs og af því tilefni fannst okkur tími til kominn að kveðja snuddurnar.

Í meira en eitt ár hefur Áslaug einungis fengið að nota snuddurnar í tengslum við nætursvefn og lúra, og þegar hún hefur verið lasin. Upp á síðkastið hefur litli prakkarinn stundum laumast í snuddurnar, skriðið upp í rúm til að kúra til þess eins að fá snuddu og ef það virkar ekki, kemur tilkynning um að nú sé hún lasin.

Við ákváðum að notfæra okkur sauðburðinn í Húsdýragarðinum til að losna við snuddurnar. Þegar við mættum þangað í morgun hittum við fyrir þrjú nýborin lömb sem voru svo ný að þau gátu ekki einu sinni staðið í lappirnar. Áslaug skildi bleiku snudduna og gulu snudduna eftir handa þeim og fannst það lítið mál.

Þegar við komum aftur í bílinn var Áslaug svolítið leið yfir að hafa látið lömbin hafa dýrgripina sína en hún verður vonandi fljót að gleyma snuðunum.

Stella | 17:28 | ummæli 2


Fimmtudagur 8. maí 2008

Enn fleiri tennur

Enn heldur hin æsispennandi frásögn af tönnum og tanntöku áfram. Ég var kannski heldur fljót á mér að álykta um komu tannar númer tvö hjá Þórdísi því tönnin sú er enn ekki komin upp á yfirborðið þótt vissulega sé hún á leiðinni. Þórdís er óhemju pirruð í gómnum þessa dagana og þráðurinn í henni stuttur eftir því.

Átjánda tönnin hennar Áslaugar Eddu fannst hins vegar við tannburstun núna í kvöld. Sú var ánægð þegar ég kom auga á nýjan hvítan blett. Nýja tönnin er vonandi útskýringin á pirringnum sem hefur verið að hrjá Áslaugu í dag og í gær.

Stella | 22:19 | ummæli 1


Mánudagur 5. maí 2008

Fleiri tennur og byrjuð að skríða

Fyrsta tönnin var ekki fyrr komin upp á yfirborðið en að við sáum að tönnin þar við hliðina á er á leiðinni og líklega verður hægt að finna fyrir henni strax í fyrramálið. Fyndið hvað þetta gerist hratt. Hjá Áslaugu Eddu kom tönn númer tvö ekki fyrr en þremur vikum eftir að fyrsta tönnin leit dagsins ljós.

Við Þórdís Ólöf fórum í sund í dag í fyrsta skiptið eftir veikindin. Ég held að hún hafi verið farin að sakna sundlaugarinnar, að minnsta kosti ljómaði litlan mín öll þegar hún kom ofan í ylvolgt vatnið.

Eftir sundið var Þórdís hin hressasta. Þegar við komum heim fór ég eitthvað að bardúsa en hún lék sér á gólfinu. Áður en ég vissi af var hún byrjuð að skríða yfir gólfið. Hún fór sér hægt en það var ekki um að villast. Barnið er búið að skipta úr bakkgír og er komið í fyrsta gír.

Stella | 22:56 | ummæli 3


Sunnudagur 4. maí 2008

Fyrsta tönnin!

Þórdís Ólöf reyndist ekki ætla að verða samferða systur sinni í tanntökumálum því fyrsta tönnin hefur litið dagsins ljós. Tönnin er sú sama og Áslaug Edda fékk fyrst, framtönnin hægra megin í neðri góm.

Þegar sást glitta í tönnina í dag var silfurskeiðin samstundis tekin fram og bankað laust í góminn. Það klingdi í svo undir tók í íbúðinni. Áslaugu fannst þetta skemmtilegt sport og vildi láta klingja sem mest. Þórdís kvartaði ekki, enda hélt hún að í skeiðinni væri eitthvert góðgæti. En þegar hún fattaði að skeiðin var tóm lét hún í sér heyra.

eintennta tók vel til matar síns í kvöld, fékk øllebrød með stöppuðum banana. Eins og stóru systur (sem hefur sautján tennur) þótti henni øllebrødið gott.

Stella | 20:37 | ummæli 3


maí 2008

innihald

nýjustu ummæli

nýjasta myndin

skjalasafn

dagbækur


RANDOM


eXTReMe Tracker