Dagbók Kristjáns og Stellu

Frásögn af lífi í ellefu víddum

 

Miðvikudagur 30. apríl 2008

Tveggja ára jaxl

Áslaug Edda hefur nú fengið sinn fyrsta tveggja ára jaxl. Við fundum hann í morgun þegar við vorum að bursta tennurnar og hún kvartaði sáran undan tannburstanum.

Ég hef alltaf merkt við þegar hún fær nýja tönn og get nú séð að síðastu tennur birtust í júlí í fyrra. Þá komu augntennurnar fjórar á einum mánuði. Fyrstu jaxlarnir komu í mars í fyrra, en þá fékk hún einmitt alla fjóra á einni viku.

Áslaug Edda fékk fyrstu tönnina sína 23. júlí 2006 og ef ég man rétt vorum við í pikknikk í Kongens Have þegar hún sást fyrst.

Ef Þórdís Ólöf er samtaka systur sinn í tanntökunni má búast við fyrstu tönninni hennar í um miðjan júní. Það verður gaman að sjá hvort það stenst.

Stella | 10:01 | ummæli 0


Mánudagur 28. apríl 2008

Veikindi, knús og húla

Þórdís liggur nú í rúminu sínu með hita. Hún hefur ýmist sofið eða legið í móki í dag og hefur verið lítil í sér. Hún borðaði nú samt ágætlega í hádeginu og hefur verið dugleg að drekka hjá mér í dag. Ég held að þetta séu fyrstu alvöru veikindin hjá Þórdísi en vonandi verður hún fljót að jafna sig á þessu.

Eins og svo oft áður vill Áslaug að þær systur sitji við sama borð. Áslaug hefur sagst vera lasin í dag eftir að hún kom af leikskólanum og viljað svolítið extra knús af því að Þórdís fær extra knús. Það er mér að sjálfsögðu ljúft og skylt að knúsa stóru stelpuna mína til jafns við þá litlu og ég verð að viðurkenna að mér finnst voðalega notalegt þegar Áslaug vill kúra hjá mér. Hún þarf sko ekki að þykjast vera lasin til að fá kúrustund.

Í gær voru keyptir strigaskór og vindgalli á Áslaugu og við sama tækifæri fékk Þórdís skriðsokkabuxur sem verða kannski til þess að sú litla skiptir úr bakkgírnum þegar hún er á ferðinni um stofugólfið.

Í sömu verslunarferð heimtaði sú sem þetta ritar að keyptur yrði húla-hringur til heimilisins. Hefur hann verið óspart notaður af fjölskyldumeðlimum í dag og í gær. Ég er svolítið ryðguð í húlinu ennþá en ef ég held áfram að æfa mig jafnmikið og ég gerði í dag verð ég fljót að ná þessu!

Stella | 21:12 | ummæli 3


Fimmtudagur 24. apríl 2008

Gleðilegt sumar!

Með hækkandi sól vaknar Þórdís Ólöf sífellt fyrr á morgnana. Hún vakti mig klukkan kortér fyrir sex í morgun og var í heilmiklu stuði, spjallaði og togaði í hárið á mér. Hún sofnaði aftur klukkutíma síðar og svaf vært þar til stóra systir kallaði á okkur og sagði að nú væri kominn dagur.

Áslaug Edda fékk sumargjöfina sína í morgun, reiðhjól með hjálpardekkjum. Hún var himinlifandi og spurði hissa erum við búin að kaupa hjól? Svo fékk hún að hjóla svolítið um stofuna áður en við fórum út að hjóla.

Svo hjólaði litla skottan upp og niður Eskihlíðina eins og ekkert væri, kunni að beygja og bremsa og fór á köflum ansi hratt. Áslaug er hin ánægðasta með hjólið og getur nú ekki beðið eftir að fara aftur út að hjóla.

Stella | 13:31 | ummæli 3


Sunnudagur 20. apríl 2008

Útskrifuð úr vöggu

Þórdís Ólöf er útskrifuð úr vöggunni og farin að nota rimlarúm. Það er ótrúlegt hvað hún hefur tollað lengi í bastvöggunni góðu úr Blindrafélaginu en nú teljum við að tími sé kominn til að skipta, öryggisins vegna. Þórdís er nefnilega orðin svo dugleg að hreyfa sig og það er sennilega ekkert sniðugt að vera á ferðinni þegar maður er ofan í lítilli vöggu.

Nýja rúmið er sannarlega ekki af verri endanum því fjölmargir úr föðurfjölskyldu Þórdísar litlu hafa notað rúmið, þeirra á meðal Kristján sjálfur. Enn sem komið er mun Þórdís sofa í okkar herbergi en innan skamms verður hún sett í herbergið til stóru systur sinnar sem eflaust verður félagsskapnum fegin.

Stella | 20:34 | ummæli 2


Miðvikudagur 16. apríl 2008

Af systrum og mat

Uppáhaldsmatur Þórdísar þessa dagana er avókadó. Hún borðar avókadó út á grautinn sinn á kvöldin en finnst líka gott að fá það blandað saman við banana. Kartöflur og gulrætur eru ekki eins spennandi en hún lætur sig þó hafa það.

Síðan Þórdís byrjaði að borða tvisvar sinnum á dag er hún farin að sofa meira á nóttunni. Nú er hún lögð í bólið um áttaleytið á kvöldin og sofnar hún yfirleitt sjálf. Síðustu tvær nætur hefur hún ekki látið í sér heyra fyrr en um þrjúleytið en þá fær hún að drekka og sefur svo til morguns. Algjör lúxus.

Uppáhaldsmatur Áslaugar Eddu um þessar mundir er saltfiskur. Um daginn þegar Baldur og Ásdís pössuðu stelpurnar elduðu þau saltfisk í kvöldmatinn. Áslaug Edda vildi eiginlega bara borða fiskinn, bað sífellt um meira, en vildi ekki sjá sósuna frekar en venjulega.

Mér finnst annars Áslaug ekki sýna kvöldmatnum mikinn áhuga. Það er rétt svo að hún narti í hann. Ef það er brauð með matnum borðar hún það og ekkert annað. Ef það er pasta í matinn borðar hún það en enga sósu með. Stundum fær hún hafragraut í kvöldmatinn ef fullreynt er með það sem er á boðstólum, en þá lauma ég líka sólblómafræjum og sesamfræjum í grautinn til að gera hann "hollari".

Sem betur fer fær Áslaug góðan mat á leikskólanum og hún borðar vel af honum. Hún fær líka ávexti í drekkutímanum svo ég ætla ekkert að stressa mig of mikið á dyntunum í henni.

Stella | 10:29 | ummæli 8


Föstudagur 11. apríl 2008

Sex mánaða skoðun

Þórdís fór í sex mánaða skoðunina áðan. Hún mældist 70 cm og var tæplega 7,2 kíló. Í skoðuninni fékk hún einnig sprautu en kveinkaði sér ekkert undan henni. Þess má geta að þegar Áslaug Edda var fjögurra mánaða var hún 7,3 kíló og 70 cm en hún var líka fædd stærri og þyngri.

Matarmálin eru í góðum farvegi hjá henni. Við byrjuðum að leyfa henni að smakka graut í kringum fimm mánaða aldurinn en nú er hún einnig búin að smakka melónur, banana og perur, kartöflur, gulrætur og sætar kartöflur. Ég ætla að reyna að fara að gefa henni tvær máltíðir á dag núna, henni finnst svo gaman að borða að hún verður örugglega hin ánægðasta með það.

Stella | 15:26 | ummæli 1


Fimmtudagur 10. apríl 2008

Stóru krakka rúmið

Áslaug Edda mun sofa sína fyrstu nótt í rimlalausu rúmi í nótt (og þá tel ég ekki með káetuna í skipinu til Riga). Við bjuggum um rúmið áðan, Áslaug valdi sér hrein rúmföt og raðaði böngsunum sínum við höfðagaflinn. Strumparnir þrír sem hún fékk hjá Bóba afa um daginn fengu líka sitt pláss þar.

Ég bjóst nú jafnvel við að Áslaug kæmi fram úr eftir að hún var sett inn að lúlla en hún hefur líklega steinsofnað strax, enda óvenjulengi á fótum nú í kvöld. Við þorðum ekki annað en að leggja teppi á gólfið hjá rúminu ef ske kynni að hún rúllaði fram á gólf einhvern tímann næturinnar.

Og nú verður spennandi að sjá hvort stóra stelpan kalli á okkur í fyrramálið eins og hún gerir venjulega, eða hvort hún fatti að fara sjálf fram úr þegar morgunhaninn heldur að það sé kominn dagur.

Stella | 23:02 | ummæli 1


Miðvikudagur 2. apríl 2008

Sex mánaða

Þórdís Ólöf er sex mánaða í dag. Hún verður duglegri með hverjum deginum og nú má maður varla líta af henni því hún er fljót að koma sér í ógöngur ef hún fær að vera ein að dunda sér á leikteppinu.

Um daginn komum við Áslaug að Þórdísi þar sem hún hafði bakkað undir sófann. Litlu mátti mun að hún hyrfi alveg undir hann. Hún er aðeins farin að fara upp á hnén en er mest í því að ýta sér aftur á bak.

Þórdís getur nú velt sér bæði af maga og baki. Það var í gær sem hún lærði almennilega að fara af bakinu og yfir á magann og gerir það nú óspart, sérstaklega á skiptiborðinu.

Ungbarnasundið er alltaf jafnskemmtilegt. Þórdís fer í kaf eins og ekkert sé og er farin að kannast við ýmsar aðrar æfingar sem við gerum saman.

Stella | 11:03 | ummæli 4


apríl 2008

innihald

nýjustu ummæli

nýjasta myndin

skjalasafn

dagbækur


RANDOM


eXTReMe Tracker