Frásögn af lífi í ellefu víddum
Það er svo gaman að hlusta á Áslaugu. Hún er svo dugleg að tala að stundum finnst manni eiginlega nóg um. Þessa dagana hljómar hún svolítið eins og Rassálfarnir enda spyr hún í sífellu af hverju og hvað er þetta?
Þegar Áslaug sá haglél í fyrsta skiptið kallaði hún það punktasnjó. Og þegar hún komst í kynni við kökugaffal notaði hún orðið tegaffall um þetta áhald. Tegafflarnir eru nefnilega geymdir í sömu skúffu og teskeiðarnar.
Gammósíur hafa verið töluvert notaðar í vetur. Ullarbolur úr sömu línu fékk nafnið gammabolur og nýja húfan hennar Þórdísar sem einnig er úr þessari sömu línu heitir nú á þessu heimili gammahúfan.
Þórdís Ólöf er byrjuð í ungbarnasundi hjá Snorra í Skálatúnslauginni, tvisvar í viku í klukkutíma í senn. Við mæðgurnar erum búnar að fara tvisvar og finnst þetta mjög skemmtilegt. Þórdís er búin að fara í kaf og var hin kátasta með það.
Ég er mjög ánægð með námskeiðið og það er gaman að sjá hvað kennarinn nær vel til barnanna. Þórdís á kannski ekki eftir að vera flugsynd á námskeiðinu en hún á eftir að styrkjast heilmikið.
Næsti tími er á föstudaginn langa en þá ætlar Kristján að koma með okkur Þórdísi. Áslaug Edda fer ekki í sund þar sem hún er með sauma í enninu en ætlar í staðinn að fá að vera með Baldri og Ásdísi á meðan við hin buslum í lauginni.
Við fórum í Húsdýragarðinn í góða veðrinu í laugardaginn. Þórdís Ólöf svaf allan tímann en Áslaug Edda lék við hvurn sinn fingur og skoðaði dýrin af mikilli athygli. Hanarnir og hænurnar þóttu henni vera merkileg dýr en hún var ekki eins spennt fyrir litla geitakiðinu.
Við Kristján erum að búa Áslaugu Eddu undir að kveðja snuddurnar sínar fyrir fullt og allt og því bentum við henni á snudduhornið í Fjósinu. Við sögðum henni að "stóru" börnin kæmu hingað með snuddurnar sínar og gæfu þær litlu grísunum. Hún gaf svosem ekkert út á snudduhornið nema henni fannst skrítið að hafa snuddurnar hangandi þarna og vildi endilega taka nokkrar og gefa grísunum, sem voru nota bene snuddulausir í stíunni sinni!
Í gær vildi Áslaug Edda fara aftur í Húsdýragarðinn og talaði mikið um að gefa grísunum snuddurnar. Mér fannst ólíklegt að hún vildi í raun og veru gefa þær og spurði hana því nánar út í hvað hún væri að meina.
Vissulega vildi Áslaug Edda fara með snuddur í Húsdýragarðinn handa litlu grísunum. Það voru bara ekki hennar eigin snuddur sem átti að hengja á hornið heldur snuddurnar hennar Þórdísar Ólafar...
Áslaug Edda fór á slysó í hádeginu í gær með skurð í augabrúninni. Slysið átti sér stað á róluvellinum á Klambratúni en þar sleppti Áslaug takinu á rólunni á fullri ferð með þeim afleiðingum að hún datt beint á andlitið.
Sem betur fer urðu sporin í ennið ekki nema tvö og sú stutta stóð sig eins og hetja á meðan verið var að deyfa og sauma. Kinnin er svolítið marin og skröpuð en að öðru leyti er Áslaug alveg heil eftir byltuna.
Á leikskólanum í morgun var hún spurð að því hvað hefði eiginlega komið fyrir. Hún svaraði: Ég datt í rólunni, fór á slysó og fékk höfrungateygju. Höfrungateygjan og prinsessulímmiðar voru sko verðlaunin sem hún fékk hjá hjúkkunni fyrir að standa sig svona vel á slysó.
Áslaug Edda þekkir muninn á svönum, gæsum og öndum. Og hún veit að andasteggir eru með grænan haus. Þetta lærði hún síðastliðinn laugardag þegar fórum og gáfum öndunum brauð. Verst bara að endurnar á Tjörninni eru aldrei svangar þegar veðrið er gott því þá kemur hálfur bærinn með brauð handa þeim.
Til þess að andabrauðið endaði ekki í ruslinu fórum við og gáfum öndunum aftur í dag. Að þessu sinni fórum við á andapollinn í Kópavoginum og voru bæði afi og Baldur með í för. Áslaug Edda var að vonum ánægð með ferðina enda hámuðu fuglarnir í sig brauðið.
Þórdís Ólöf fór í fimm mánaða skoðun á heilsugæslustöðinni hérna í hverfinu í dag. Samkvæmt nýjustu tölum vegur hún 6,8 kg og er orðin 68,5 cm á lengd. Höfuðmál er 44 cm. Eins og vera ber í fimm mánaða skoðun fékk hún sprautu en kveinkaði sér ekkert undan henni eins og duglegri stelpu sæmir.
Það var annars stór dagur í lífi litlunnar í gær en þá smakkaði hún graut í fyrsta skiptið. Hún hefur verið svo áhugasöm um matarvenjur annarra fjölskyldumeðlima að hún hlaut eiginlega að vera tilbúin til að fá smá graut. Og sú var aldeilis ánægð með grautinn! Þórdís Ólöf fílaði hann frá fyrstu skeið og var beinlínis óþolinmóð ef næsta skeið var of lengi á leiðinni.
Stóru systur fannst mjög spennandi að gefa litlu systur að borða en úrskurðaði samt að grauturinn væri vondur eftir að hafa smakkað sjálf.
Við Áslaug Edda fórum í Vestubæjarlaugina eftir kvöldmatinn. Við lágum aðallega í pottinum en kíktum í smástund í laugina þar sem Áslaug Edda fór meðal annars í kaf og náði að að botna þar sem laugin er grynnst.
Í heita pottinum var ellefu ára gömul stelpa sem var afskaplega hrifin af Áslaugu. Aðdáunin var gagnkvæm og spjölluðu þær heilmikið saman, léku sér með bolta og busluðu. Við hittum stelpuna aftur í búningsklefanum en þá varð Áslaug Edda mjög hissa.
Það kom nefnilega smátt og smátt í ljós að þær stöllur áttu svipuð föt. Þetta byrjaði allt með bambasokkunum, en það eru mokkasínur með mynd af Hello Kitty. Áslaug Edda sá að stelpan var í Hello Kitty-sokkum og spurði alveg hissa átt þú líka bambasokka? Stelpan átti líka gallabuxur og æfingapeysu eins og Áslaug og þegar við vorum búnar að klæða okkur og á leið út var Áslaugu allri lokið:
Átt þú líka stígvél?
Það er merkisdagur í okkar fjölskyldu í dag því Þórdís Ólöf er orðin fimm mánaða. Hún hélt upp á daginn með því að sitja sjálf í um það bil tíu sekúndur. Þetta er allt að koma hjá henni og með stífum setæfingum á næstu dögum ætti hún að vera farin að sitja almennilega innan skamms.
Þórdísi finnst gaman að liggja á maganu og naga leikföngin sín. Svo horfir hún líka voðalega mikið í spegilinn sinn og fílar að spegla sig ásamt okkur hinum. Stóra systir er skemmtikraftur númer eitt, tvö og þrjú í þessari fjölskyldu og má tuskast svolítið með litluna án þess að nokkurt kvart heyrist.