Froskur.net fær 2. verðlaun
í heimasíðukeppni strik.is

Mat dómnefndar

2. sæti: www.froskur.net

froskur Þykir þessi vefur að mati dómnefndar gefa einstæða og afar persónulega innsýn í líf og leik aðstandenda, sem eru ófeimin við að hleypa netverjum inn á gafl á sér.

Vefurinn er uppfærður því sem næst daglega og þar er að finna gnótt texta og mynda sem fjalla um allt milli himins og jarðar. Dagbókarfærslur eru síðan enn eitt kryddið á þessum magnaða vef.

Dómnefndin telur aðstandendur vefjarins notfæra sér margmiðlunarmöguleika Netsins til hins ítrasta.

Myndir frá verðlaunaafhendingu

Verðlaunin

Verðlaunin voru kr 50.000-

Úr fréttunum

augl

Úr dagbókinni

Mánudagur 30. apríl 2001

Við fengum verðlaun!
Síðan froskur.net lenti í öðru sæti í heimasíðukeppni strik!s. Við vorum að koma heim af verðlaunaafhendingunni þar sem við fengum léttar veitingar og ávísun.

Við tókum nokkrar myndir eins og við var að búast: litmyndir og svarthvítar.

Núna erum við orðin fræg á netinu. Hér má sjá frétt á strik.is og nánar um úrslitin. Halló allir nýir gestir!

kristján @ 16:55 [ hlekkur á þessa færslu í dagbókinni. ]
Þriðjudagur 1. maí 2001

Meira um verðlaunin
Við Stella fengum tölvupóst í síðustu viku frá Strik.is. Þar stóð:

Síðan ykkar er í vinningssæti í heimasíðusamkeppni Strik.is
[...]
Ég vonast eftir að sjá ykkur á verðlaunaafhendingunni.

Þetta fannst mér skrítið því við skráðum okkur ekki í þessa keppni, auk þess sem ég hélt að hún væri löngu búin.

Ég var því alveg viss um að þetta væri Kári Ragnarsson að stríða okkur. Við Kári höfum nefnilega verið í svolitlu grallarastríði á netinu og grín af þessu tagi passar alveg við hans stíl.

Einu sinni sendi hann mér bréf frá Unofficial European Bowie Club og sagði að ég hefði unnið miða fyrir tvo á tónleika með David Bowie í Belgíu. Ég yrði að svara þessu bréfi innan 30 daga, ella fengi einhver annar miðana.

En í þetta skiptið sagðist Kári vera alsaklaus. Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að EllaDís skráði okkur í heimasíðukeppnina og bréfið góða var alveg ekta.

Takk, EllaDís, fyrir að skrá okkur :-)

kristján @ 22:04 [hlekkur]

© 2001 Kristján og Stella Soffía
Miðvikudagur, 22-Okt-2003 16:50:20 GMT