| Sigga Sif - [www] - Mon Aug 13 15:30:26 2001 |
|
Vá, þið eruð ótrúleg í einu orði sagt! Innilegar hamingjuóskir frá mér og von um langt og farsælt hjónaband. Þið eruð fyrstu vinir mínir sem gifta sig!
Oh, mér dettur ekkert spaklegt í hug, þannig að: hæ ;) Sigga |
| Krissa - Mon Aug 13 19:26:22 2001 |
|
Thid erud nu alveg flottust!!!
Enn og aftur til hamingju, til hamingju, til hamingju... Knus, kuns fra Krissu... |
| Vala - [www] - Mon Aug 13 21:44:26 2001 |
|
Til hamingju og velkomin i giftra manna tolu!
Eg myndi nu segja ad thetta hafi verid alveg Kaerar kvedjur, Vala og Oliver |
| Fanný Rósa Bjarnadóttir - [www] - Mon Aug 13 23:06:07 2001 |
|
Til hamingju með giftinguna.
Ég þekki ykkur ekkert en finnst þetta voða sniðugt uppátæki hjá ykkur. Vonandi fylgir ykkur gæfa og velgengi í hjónabandinu. Dagurinn sem þið fenguð sem brúðkaupsdag er ansi góður, hann hefur dugað mér vel sem afmælisdagur og ég efast ekki um að hann sé prýðisgóður brúðkaupsdagur. Bestu kveðjur, |
| Bella systir - Tue Aug 14 11:27:39 2001 |
|
Elsku Kristján og Stella !
Innilega til hamingju með brúðkaupið ! Megi gæfa og gengi fylgja ykkur um ókomna tíð ! Hæ, Bella |
| Fríður Skeggjadóttir - Tue Aug 14 14:06:00 2001 |
|
Hæ hæ, innilega til hamingju með brúðkaupið.
Þetta var frábært hjá ykkur! Var búin að leita að síðunni ykkar lengi, fann svo loksins slóðina á heimasíðu litlu systur :) |
| Kristbjörg Heiður - Fri Aug 17 14:45:23 2001 |
|
Hæbbs. ÉG þekki ykkur ekki neitt, en ég er kærastan hans Hannesar (stærðfræði-HÍ) og hann sagði mér frá þessu uppátæki og benti mér á síðuna ykkar og dí, hvað maður myndi láta græða í sig internet-kubb einhverskonar um leið og hann kæmi á markaðinn ef allar heimasíður væru jafn skemmtilegar og ykkar. Frábært að drífa svo bara í að gifta sig. Til hamingju! Bæbbs.
|
| Ásta og Garðar - Sat Aug 18 14:09:07 2001 |
|
Elsku Kristján og Stella!
Nú veit ég loksins hvernig Sesari leið þarna um árið þegar hann sagði á útlensku: et tu Brut! En í alvöru óska ég ykkur innilega til hamingju þó við fréttum þetta allt saman mánuði of seint, en hvað með það, við erum nú bara nánustu vandamenn og þurfum ekkert að vita af svona smámunum. Tveir stórir kostir koma þó upp í huga mér: 1) við erum ennþá blönk eftir brúðkaupið hennar Bellu svo það er flott að þurfa ekki að kaupa gjöf fyrr en næsta ár, og 2) loksins ruslaði ég mér, háöldruð konan, inn á netið. Að öllu gamni slepptu og í fúlustu alvöru óskum við ykkur þó innilega til hamingju með skrefið og megi gæfan elta ykkur á röndum. Ásta móðursystir, Garðar eiginmaðurinn hennar og börnin öll, Daníel, Anna og María Emilía. Kiss kiss kiss. |
| Hilla - Mon Aug 20 14:15:02 2001 |
|
Hæ hæ elsku Stella og Kristján
Innilega til hamingju!! Ég átti nú engann vegin von á þessu en þetta var ykkur líkt að gifta sig með engum fyrirvara. Hafið það bara sem allra best bæði núna og í framtíðinni Kveðja, |
| Dúna - Fri Aug 24 01:52:14 2001 |
|
Þetta er frábært hjá ykkur,TIL HAMINGJU MEÐ
BRÚÐKAUPIÐ, Sendi Sollu nógu mikið nammi svo þið getið fengið líka gaman að lesa síðuna ykkar. Sollu mamma |